Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

13. september 2005 InnviðaráðuneytiðSturla Böðvarsson, samgönguráðherra 1999-2007

Ræða Sturlu Böðvarssonar við opnun Reyðarfjarðarganga 09.09 2005

Forsætisráðherra, vegamálastjóri, fulltrúar verktaka, alþingismenn, heimamenn og gestir.

Í nafni samgönguráðuneytisins fagna ég verklokum hér  við Reyðafjörð.

Gott verk hefur verið unnið sem hefur mikla þýðingu fyrir íslenska samfélagið. Hver einasti hluti vegakerfisins sem er endurbyggður er í þágu allra Íslendinga.

Þess skulum við minnast við verklok hér við Reyðafjörð þar sem í dag drýpur smjör af hverju strái eins og sagt var um gósen lönd úr fortíðinni.

 Við eigum og verðum að muna að við erum ein þjóð sem byggir þetta land. Við verðum að minnast þess einnig að við eigum allt undir því að samtakamáttur okkar verði það að afl sem tryggir sjálfstæði okkar og  varðveiti menningu okkar. Mikilvægur hluti þeirrar viðleitni er að tryggja samgöngur með öruggu vegakerfi.

 Um leið og ég lýsi jarðgöngin á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar  formlega opnuð vil ég leyfa mér að þakka almættinu fyrir að hafa haldið sinni verndarhendi yfir starfsmönnum við verkið og tryggt  framvindu þessa mikilvæga  mannvirkis sem við tökum í notkun á þessum fallega degi.

 Ég lýsi jarðgöngin milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar opin fyrir umferð. Megi gæfan fylgja öllum vegfarendum sem fara um þetta glæsilega mannvirki  og megi góðir vættir vaka yfir byggðum austurlands. 

Sturla Böðvarsson


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum