Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

30. mars 2012 MatvælaráðuneytiðKatrín Júlíusdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra 2000-2001, iðnaðarráðherra 2009-2012

Virkjum af skynsemi – verndum af skynsemi!

Virkjum af skynsemi – verndum af skynsemi!

Fá mál hafa reynt jafn mikið á þjóðina á undanförnum áratugum eins og ágreiningurinn um hvar skuli virkjað og hvar verndað. Bæði sjónarmiðin eiga rétt á sér; landið okkar býr yfir miklum orkuauðlindum sem má umbreyta í uppbyggingu og störf. En það felast ekki síður verðmæti í einstakri og óspilltri náttúru náttúru Íslands sem okkur er treyst til að standa vörð um fyrir komandi kynslóðir. Auk þess hefur þeim sjónarmiðum verulega vaxið ásmegin að náttúruvernd sé mikilvægur grundvöllur ferðaþjónustunnar sem vaxandi atvinnugreinar.

Í gær var þingsályktunartillaga um Rammaáætlun kynnt en hún verður síðan lögð fram á Alþingi til umfjöllunar og afgreiðslu. Í áætluninni er hugsanlegum virkjunarkostum raðað í orkunýtingarflokk, verndarflokk eða biðflokk og er markmiðið að skapa framtíðarsýn í verndunar- og virkjanamálum og ná almennri sátt í þjóðfélaginu um þennan mikilvæga málaflokk.

Vinna við Rammaáætlun hefur staðið yfir allt frá árinu 1999 en að henni hafa komið fremstu vísindamenn þjóðarinnar á ótal sviðum. Í ágústmánuði sl. voru drög að þingsályktunartillögu lögð fram í 12 vikna opið umsagnar- og samráðsferli þar sem bárust vel yfir 200 umsagnir. Allar umsagnirnar voru metnar og á grundvelli þeirra gerðar breytingar á drögunum sem lögð voru fram til kynningar. Um er að ræða breytingar þar sem svæði eru færð úr nýtingarflokki í biðflokk; annars vegar virkjunarkostir í neðri hluta Þjórsár (Urriðafossvirkjun, Holtavirkjun og Hvammsvirkjun) og hins vegar kostir á hálendinu (Hágönguvirkjanir I og II og Skrokkölduvirkjun).

Í öllum tilvikum eru rökin þau að vegna nýrra upplýsinga sem komu fram í samráðsferlinu beri að rannsaka tiltekna þætti betur áður en endanleg ákvörðun um nýtingu eða vernd verður tekin. Á grundvelli laga nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun, eru hér svokölluð varúðarsjónarmið höfð til hliðsjónar; ef um vafa er að ræða þá beri að kanna hann til hlítar áður en endanleg ákvörðun er tekin. Það kemur síðan í hlut nýrrar verkefnisstjórnar rammaáætlunar, sem skipuð verður í kjölfar samþykktar Alþingis, að hrinda í framkvæmd nauðsynlegri rannsóknarvinnu vegna umræddra virkjunarkosta og lögð er áhersla á að tillaga um endanlega flokkun liggi fyrir svo fljótt sem auðið er eftir að nauðsynlegar upplýsingar liggja fyrir.

Þegar ólík sjónarmið takast á ríður á að finna jafnvægi sem breið samstaða getur náðst um. Náttúruverndarsamtök hafa lýst þeim sjónarmiðum sínum að mun fleiri virkjunarkostir eigi að falla í verndarflokk. Og frá þeim sem vilja ganga lengra í orkunýtingu heyrast öndverðar skoðanir.

Rammaáætlun verður rædd á Alþingi á komandi mánuðum og endanlega afgreidd þaðan. Nú sér loks fyrir endann á löngu, flóknu og metnaðarfullu ferli um þetta stóra mál þar sem brýnt er að byggja hvert skref á yfirvegun og málefnalegri afstöðu.

Oddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum