Hoppa yfir valmynd
08. júlí 2022 Matvælaráðuneytið

Mannúð við aflífun dýra - grein birt á Vísi 7. júlí 2022

Fyrir tæpum áratug mælti ég fyrir lögum um dýravelferð. Þau lög fólu í sér miklar umbætur á sviði dýravelferðarmála. Þau lög hafa það markmið að stuðla að aukinni velferð dýra, í ljósi þess að þau eru skyni gæddar verur með sjálfstæðan tilverurétt. Í kjölfar þessarar lagasetningar var ráðist í endurskoðun á öllum reglum um aðbúnað búfjár og kröfur auknar. Þessar auknu kröfur hafa kostað bændur miklar fjárfestingar. En þær stuðla að því að búfé eigi líf sem er þess virði að lifa áður en þau enda ævi sína í sláturhúsi.
Er aflífun stærstu dýra jarðarinnar mannúðleg?

Á ári hverju slátrum við hundruðum þúsunda dýra í sláturhúsum. Reglurnar miða að því að tryggja að dauðdagi þeirra sé skjótur og án þjáningar, að aflífun sé mannúðleg. En um aflíun einnar tegundar spendýra vitum við ekki nóg til að segja til um hvort að sé mannúðleg. Hvalir eru stærstu spendýr jarðarinnar og raunar stærstu dýr sem nokkru sinni hafa verið til á jörðinni. Rannsókn unnin fyrir Fiskistofu árið 2015, á aflífun 50 langreyða, bendir til að óásættanlega stór hluti hvala veiddra í atvinnuskyni heyi langdregið dauðastríð. Mikilvægt er að skera úr um þetta með því að safna betri gögnum.

Til þess að svara því hvort aflífun hvala sé mannúðleg hér á landi hyggst ég gera tvennt. Í fyrsta lagi birtist á samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð sem skylda þá sem leyfi hafa til stórhvalaveiða að tilnefna einn af áhöfninni sem dýravelferðarfulltrúa. Sá þarf að sitja námskeið í velferð hvala og skila til Matvælastofnunnar myndböndum af aflífun hvers einasta hvals sem veiddur er. Þau gögn sem þannig safnast munu koma til með að varpa ljósi á spurninguna hér að ofan. Í öðru lagi stefni ég að því að næsta sumar verði eftirlitsdýralæknar á hvalveiðiskipum sem hafi eftirlit með aflífun hvalanna, þetta er sambærilegt við hlutverk eftirlitsdýralækna í sláturhúsum. Þannig verði einfaldlega gerðar sömu kröfur til þeirra sem aflífa hvali í atvinnuskyni og til þeirra sem aflífa búfé; að aflífunin sé skjót og án þjáningar. Niðurstöður þessa koma til með að hafa áhrif á það mat sem mun fara fram á efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum hvalveiða og hvort réttlætanlegt sé að leyfa þær áfram.

Byggjum ákvarðanir á staðreyndum

Í nútímasamfélagi eru og verða mismunandi skoðanir á því hvort og í hvaða mæli við eigum að nýta okkur afurðir dýra. Ég held hins vegar að allir geti verið sammála um þau markmið sem lög um velferð dýra byggist á. Að við tryggjum að þau dýr sem við tökum ákvörðun um að heimilt sé að nýta séu aflífuð á mannúðlegan hátt. Atvinnugreinar sem ekki geta tryggt það eiga enga framtíð í nútímasamfélagi.

Höfundur er matvælaráðherra


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum