Hoppa yfir valmynd
04. febrúar 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

550 milljón kr. inn­spýting í ferða­þjónustu

Samfélagið er farið að sjá til lands í faraldrinum sem hefur herjað á heiminn undanfarin tvö ár. Bjartsýni eykst með degi hverjum og Ísland er ásamt fleiri löndum farið að stíga veigamikil skref í átt að afléttingum sóttvarnaráðstafana. Þessi þróun hefur jákvæð áhrif á ferðavilja fólks sem hefur í sögulegu samhengi verið með minna móti undanfarin tvö ár. Í þessu felast mörg tækifæri fyrir íslenska ferðaþjónustu og efnahagslíf sem mikilvægt er að grípa.

Með þetta í huga hefur nýtt menningar- og viðskiptaráðuneyti ákveðið að verja 550 milljónum kr. til að framlengja markaðsverkefnið „Ísland – saman í sókn“. Með nýjum samningi við Íslandsstofu er verkefninu tryggðar 550 milljónir króna sem nýttar verða til að framlengja það í ár. Tilgangur verkefnisins er að styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar, og auka eftirspurn og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og annarra útflutningsgreina. Íslandsstofa hefur þegar hafið fjölbreytta vinnu við að útfæra framhald verkefnisins.

Stjórnvöld hafa frá upphafi faraldursins lagt áherslu á að beita ríkisfjármálum af fullum þunga til þess að tryggja kröftuga viðspyrnu efnahagslífsins að faraldri loknum. „Ísland – saman í sókn“ fór vel af stað, vakti mikla og verðskulda athygli og skilaði góðum árangri. Í ljósi þess að faraldurinn hefur dregist töluvert á langinn er nauðsynlegt að halda verkefninu áfram og byggja þannig undir nauðsynlega viðspyrnu ferðaþjónustunnar á árinu 2022.

Íslensk ferðaþjónusta mun spila lykilhlutverk í viðspyrnu efnahagslífsins eftir heimsfaraldurinn en sú atvinnugrein hefur alla burði til þess að skapa miklar gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið á tiltölulega skömmum tíma. Við ætlum okkur að halda áfram að byggja upp öfluga, arðsama og samkeppnishæfa ferðaþjónustu á heimsmælikvarða, í sátt við náttúru og íslenska menningu. Eitt markmiða okkar í því samhengi er að útgjöld ferðamanna hér á landi nemi 700 milljöðrum kr. árið 2030.

Fullt tilefni er til þess að líta björtum augum til framtíðar og ég er sannfærð um að fjárfesting í kynningu á Íslandi sem spennandi áfangastað muni nýtast íslenskri ferðaþjónustu vel og kynda undir aukinn ferðavilja hingað til lands – samfélaginu öllu til heilla.

Höfundur er ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra.
Greinin birtist á Vísi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum