Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

15. desember 2017 Mennta- og barnamálaráðuneytiðMennta- og menningarmálaráðuneytið

Framsaga mennta- og menningarmálaráðherra um stefnuræðu forsætisráðherra

 Lilja Alfreðsdóttir - mynd

Menntun, menning og íþróttir eru lykilstoðir í okkar samfélagi. Þetta er allt í senn; uppspretta velsældar, hornsteinn framfara og rót aukinna lífsgæða. Framundan er stórsókn í menntamálum. Við ætlum að búa börnin okkar og samfélagið allt undir þær viðamiklu og öru tæknibreytingar sem eru að verða, og hafa nú þegar sýnileg samfélagsleg áhrif. Við viljum að Ísland verði fyrsti valkostur ungs fólks til búsetu, að menntakerfið sé í fremstu röð og leggi grunninn að hagsæld og vellíðan. Menntakerfið á að búa nemendur undir nýjar áskoranir og fjölbreytt störf sem grundvallast á sköpun, færni og hæfni til að leysa flókin vandamál, enda á Ísland framtíðarinnar í auknum mæli að vera hugverkadrifið.

Framlög til menntamála eru fjárfesting, en ekki útgjöld. Hver króna sem við leggjum inn í háskólastigið skilar sér áttfalt út í hagkerfið og strax á næsta ári mun ríkisstjórnin auka fjárfestingu í háskólastiginu um 2.800 milljónir króna. Fjárfestingin mun skila sér í fjölbreyttara atvinnulífi, betri áhættudreifingu hagkerfisins og auknum lífsgæðum.

Framhaldsskólar landsins verða einnig efldir strax á næsta ári. Sá sparnaður sem stytting náms til stúdentsprófs skilar, mun skila sér inn í rekstur skólanna ásamt rúmlega eins milljarðs aukningu. Við ætlum að tryggja, að skólakerfið verði bæði fjölbreytt og framsýnt. Með þessari styrkingu erum við raunverulega að efla iðn- og verknám í landinu. Auk þess verður meiri áhersla á raun- og tæknigreinar á framhaldsskólastigi.

Góðir landsmenn!
Yfirvofandi fækkun í kennarastéttinni er ein stærsta áskorun samfélagsins. Margir kennarar eru að komast á eftirlaunaaldur og margir kjósa að starfa utan menntakerfisins. Samfélagið allt þarf að taka saman höndum, svo kennarastarfið öðlist að nýju þann sess og virðingu sem það á skilið. Við þurfum í sameiningu að leysa þann vanda sem blasir við okkur, og nálgast hann með opnum huga – mögulega hugsa hlutina upp á nýtt, en ekki eingöngu út frá kerfinu eins og við þekkjum það.

Kerfisbreytingar geta verið af ýmsum toga. Ein slík er fyrirhuguð breyting á námslánakerfinu, þar sem ætlunin er að auka hvata til góðrar ástundunar og breyta lánareglum LÍN – Lánasjóðs íslenskra námsmanna – svo hluti lána breytist í námsstyrk, klári nemandi nám sitt á tilsettum tíma.

Virðulegi forseti.
Ég vil ræða um mál sem okkur öllum er kært. Þetta mál er íslenskan, tungumálið okkar og staða hennar til framtíðar. Það er virkilega ánægjulegt að greina frá því að strax á næsta ári verða settar 450 milljónir í máltækniverkefni fyrir íslensku, sem miðar að því gera hana gildandi í þeirri tæknibyltingu sem á sér stað. Við eigum að halda íslenskunni að börnunum okkar - hvetja þau til að lesa, skrifa og skapa meira – við eigum að auðvelda útgáfu á íslenskum bókmenntum fyrir börn og fullorðna.

Þess vegna ætlum við að breyta skattlagningu á íslensku ritmáli, tónlist og bókum, eins og stendur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Fyrsta skrefið verður að afnema virðisaukaskatt á bókum, svo rithöfundar og útgefendur hafi meira svigrúm til að bregðast við krefjandi aðstæðum. Auk þessa verður farið í að efla rekstrarumhverfi fjölmiðla til að þeir geti haldið áfram að miðla vönduðu efni til okkar.

Við höldum áfram að styðja við íslenska kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð sem er ekki aðeins mikilvæg fyrir íslenska málþróun, heldur hefur einnig skapað gríðarleg verðmæti fyrir samfélagið allt.

Menning, listir og íþróttir eru sameiningaröfl. Þau eru ófá skiptin sem við höfum glaðst yfir afrekum okkar frábæru lista- og íþróttamanna á erlendri grundu, hvort sem það eru stelpurnar okkar eða strákarnir okkar. Reglulega tekst þessu fólki að veita okkur innblástur og að gera okkur stolt. Árangur strákanna okkar í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu er nýjasta dæmið af mörgum. Eitthvað segir mér að allir landsmenn bíði með eftirvæntingu eftir því að upplifa þá miklu þjóðhátíð sem mun ríkja í kringum HM í Rússlandi næsta sumar. Því ber að fagna.

Að því sögðu vil ég óska öllum þeim flokkum og þingmönnum sem hér sitja, velfarnaðar á komandi þingi og hlakka ég mikið til að vinna með ykkur í að auka veg og virðingu Alþingis og sækja fram fyrir land og þjóð.

Góðar stundir og njótið aðventunnar.


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum