Kynningarmyndbönd
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa 15. nóvember 2020
Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa var haldinn sunnudaginn 15. nóvember. Að þessu sinni var minningardagurinn sniðinn að sérstökum aðstæðum í samfélaginu. Í stað rótgróinnar minningarstundar við Landspítalann í Fossvogi var árvekniátak í samfélaginu um umferðaröryggi.
- Ávarp Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands
- Ávarp Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Netfundur um niðurstöður ferðavenjukönnunar samgönguráðs og SSH (19.3.2020)
Í myndbandi um ferðavenjukönnunina fjalla sérfræðingar og áhrifafólk um helstu niðurstöður könnunarinnar. Þátttakendur eru: Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Þórunn Egilsdóttir, alþingismaður og formaður samgönguráðs, Dr. Haraldur Sigþórsson, samgönguverkfræðingur, Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH og Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar. Fyrirhugað var að þau tækju þátt í morgunverðarfundi um efnið en honum var aflýst.
Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins (26.9.2019)
Myndband um tímamótasamkomulag ríkis og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum til fimmtán ára.
Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga
Myndband stefnu ríkisins í málefnum sveitarfélaga, þá fyrstu á Íslandi, markmið hennar og ellefu aðgerðir til að styrkja umgjörð og grundvöll sveitarstjórnarstigsins.
Um ráðuneytið
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.