
Haraldur Jónasson / Hari
Málefni samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Samkvæmt forsetaúrskurði fer samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti með mál er varða:
1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
2. Samgöngur í lofti, á láði og legi, þar á meðal:
- Flugvelli, vegi, hafnir, vita og sjóvarnir.
- Skipulag og uppbyggingu samgöngukerfisins.
- Viðhald og rekstur samgöngukerfisins.
- Farþegaflutninga, farmflutninga og almenningssamgöngur.
- Samgönguöryggi.
- Samgönguvernd.
- Samgönguáætlun.
- Rannsókn samgönguslysa, þ.m.t. málefni rannsóknarnefndar samgönguslysa.
- Samgöngutækjaskrár.
- Eftirlit með skráningu og búnaði samgöngutækja.
- Eftirlit með loftferðum og umferð ökutækja og skipa.
- Leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfi samgangna.
- Réttindamál fagaðila í skipum, loftförum og ökutækjum.
- Köfun.
- Slysavarnaskóla sjómanna.
- Lögskráningu sjómanna.
- Samgöngustofu.
- Vegagerðina.
3. Fjarskipti, þar á meðal:
- Fjarskiptanet, þó ekki efni sem sent er á fjarskiptanetum.
- Fjarskiptaþjónustu, gagnaflutninga og fjarskiptarekstur.
- Fjarskiptavernd.
- Öryggi rafrænna samskipta og netöryggi.
- Lén og málefni netsins.
- Eftirlit með fjarskiptum.
- Fjarskiptasjóð.
- Póstþjónustu, póstrekstur og eftirlit með póstþjónustu.
- Póst- og fjarskiptastofnun og málefni úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála.
4. Sveitarstjórnarmál, þar á meðal:
- Stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga.
- Tekjustofna og fjármál sveitarfélaga.
- Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
- Mörk sveitarfélaga.
- Innheimtustofnun sveitarfélaga.
5. Byggðamál, þar á meðal:
- Byggðaáætlun og sóknaráætlanir.
- Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara.
- Svæðisbundna flutningsjöfnun.
- Byggðastofnun.
6. Almannaskráningu og lögheimili, fasteignaskrá og fasteignamat, þar á meðal:
Um ráðuneytið
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.