Hoppa yfir valmynd

Málefni innviðaráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (31. janúar 2022).

Samkvæmt forsetaúrskurði fer innviðaráðuneyti með mál er varða:

1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

2. Samgöngur í lofti, á láði og legi, þar á meðal:

  1. Flugvelli, vegi, hafnir, vita og sjóvarnir.
  2. Skipulag og uppbyggingu samgöngukerfisins.
  3. Viðhald og rekstur samgöngukerfisins.
  4. Farþegaflutninga og farmflutninga landi, þ.m.t. almenningssamgöngur.
  5. Landflutninga.
  6. Samgönguöryggi.
  7. Samgönguvernd.
  8. Samgönguáætlun.
  9. Rannsókn samgönguslysa, þ.m.t. málefni rannsóknarnefndar samgönguslysa.
  10. Samgöngutækjaskrár.
  11. Eftirlit með skráningu og búnaði samgöngutækja.
  12. Eftirlit með loftferðum og umferð ökutækja og skipa.
  13. Leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfi samgangna.
  14. Réttindamál fagaðila í skipum, loftförum og ökutækjum.
  15. Köfun.
  16. Slysavarnaskóla sjómanna.
  17. Lögskráningu sjómanna.
  18. Skipagjald.
  19. Samgöngustofu.
  20. Vegagerðina.

3. Sveitarstjórnarmál, þar á meðal:

  1. Stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga.
  2. Tekjustofna og fjármál sveitarfélaga.
  3. Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
  4. Mörk sveitarfélaga.
  5. Innheimtustofnun sveitarfélaga.

4. Skipulagsmál, þar á meðal:

  1. Skipulagslög.
  2. Skipulag haf- og strandsvæða.
  3. Skipulagsstofnun.

5. Húsnæðis- og mannvirkjamál, þar á meðal: 

  1. Húsnæðislán.
  2. Greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga.
  3. Greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
  4. Húsnæðissjóð. 
  5. Húsaleigumál.
  6. Húsnæðisbætur.
  7. Húsnæðissamvinnufélög og byggingarsamvinnufélög.
  8. Almennar íbúðir.
  9. Húsnæðissjálfseignarstofnanir.
  10. Húsnæðismálasjóð.
  11. Fjöleignarhús.
  12. Frístundabyggð.
  13. Kærunefnd húsamála.
  14. Eftirlit með mannvirkjum og gerð þeirra.
  15. Brunavarnir.
  16. Byggingarvörur.
  17. Eftirlit með öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga í mannvirkjum.
  18. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

6. Byggðamál, þar á meðal:

  1. Byggðaáætlun og sóknaráætlanir.
  2. Svæðisbundna flutningsjöfnun.
  3. Póstþjónustu, póstrekstur og eftirlit með póstþjónustu.
  4. Byggðastofnun

7. Skráningu lögheimilis og aðseturs, fasteignaskrá og fasteignamat, þar á meðal:

  1. Þjóðskrá Íslands.
  2. Yfirfasteignamatsnefnd
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum