Hoppa yfir valmynd
16. júní 2017 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Landspítali og Verandi tilnefnd til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

Danska smáforritið "Too good to go" sem spornar við matarsóun hlaut verðlaunin í fyrra. - myndMagnus Fröderberg/norden.org

Norræn dómnefnd hefur valið 11 verkefni til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs úr hópi þeirra tillagna sem borist hafa frá almenningi á Norðurlöndum. Þemað í ár eru verkefni sem færa okkur nær úrgangslausu samfélagi.

Tveir íslenskir aðilar eru meðal tilnefndra. Annars vegar hlýtur Landspítalinn tilnefningu fyrir að draga úr sóun í starfsemi sinni. Hins vegar hlýtur fyrirtækið Verandi tilnefningu fyrir vandaðar húðvörur sem framleiddar eru með því að endurnýta auðlindir náttúrunnar.

Eftirfarandi hlutu tilnefningu í ár:

Finnland

  • Rec Alkaline Ltd - Breytir alkalískum rafhlöðum í hreinan snefilefnaáburð
  • RePack - Endurnýtanlegar umbúðir fyrir rafræna verslun

Ísland

  • Landspítali - háskólasjúkrahús - Minni sóun, áhersla á færri einnota hluti, endurvinnslu og matarsóun
  • Verandi - Framleiðir vandaðar húðvörur með því að endurnýta auðlindir náttúrunnar

Noregur

  • Restarters Oslo - Hvetur fólk til að tileinka sér skapandi og félagslega viðgerðamenningu
  • Hold Norge Rent - sjálfboðasamtök sem vinna gegn mengun
  • Eyde-klyngen - Leiðandi afl í hringrásarhagkerfi iðnaðarins: Verðmæti úr úrgangi

Svíþjóð

  • ALLWIN - dregur úr matarsóun, 2 milljónir máltíða á ári fyrir bágstadda
  • Matcentralen, Stockholms Stadsmission - vinnuaðlögun og endurdreifing afgangsmatar
  • ICA og Rescued Fruits - Drykkir búnir til úr hólpnum ávöxtum frá ICA
  • Swedish Algae Factory - Eykur skilvirkni sólarrafhlaðna með efni unnu úr þörungum

Verðlaunin eru veitt árlega norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur tekist á framúrskarandi hátt að flétta náttúru- og umhverfissjónarmið í starfsemi sína, eða hefur á annan hátt lagt fram mikilvægan skerf í þágu náttúru og umhverfis.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2017 verða afhent í 23. sinn í Helsinki þann 1. nóvember 2017 á þingi Norðurlandaráðs. Verðlaunaféð er 350.000 danskar krónur (rúmlega 5,3 mill ISK).

Nánar um verðlaunin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum