Hoppa yfir valmynd
09. maí 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ávarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á Samorkuþingi 2022

Kæru fundargestir,

Það er mér mikil ánægja að ávarpa ykkur í dag á 25 ára afmælisþingi samtakanna, sem haldið er nú loks eftir að hafa verið frestað í tvígang vegna heimsfaraldursins. Vil ég af þessu tilefni óska samtökunum innilega til hamingju með afmælisáfangann. Því miður háttaði þannig til að ég sá mér ekki fært að mæta norður að þessu sinni til að samgleðjast og fagna þessum tímamótum, en það verða önnur tækifæri vonandi fljótlega.

Það er mikilvægt fyrir bæði stjórnvöld sem og orku- og veitufyrirtækin að til staðar sé öflugur málsvari. Samorka hefur eflst og dafnað í þessu hlutverki frá stofnun og þróast í takt við tímann með nýjum og krefjandi verkefnum. Stjórnvöld geta ekki ein og óstudd áorkað miklu, heldur þurfa að eiga gott samtal og samvinnu við haghafa og samfélagið allt, ekki síst í þeim krefjandi málaflokkum sem við erum að fást við sameiginlega. Samstarfið við Samorku hefur verið farsælt og vil eiga ykkur áfram að sem virka þátttakendur í þeim ótal áhersluverkefnum sem fram undan eru.

Yfirskrift fundarins er „Framtíðin er í dag“. Í orðunum felst að mínu mati ákveðið ákall eftir því að sjá okkur miða hraðar áfram á vegferð okkar. Vegferð sem er í átt að kolefnishlutleysi og fullra orkuskipta. Sé það rétt ályktað, þá deili ég með ykkur þeirri von og óþreyju, enda veit ég nú eftir nokkra mánuði í ráðuneytinu með enn betri vissu hvað er fram undan.

Þannig er að, eitt af mínum fyrstu embættisverkum sem ráðherra orkumála var að setja af stað vinnu með skipan starfshóps sem var falið að vinna að gerð skýrslu um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum, stundum kölluð grænbók. Vil ég hér nýta tækifærið og þakka öllum sem hafa komið að því verki fyrir sín störf, bæði nefndinni sem og öllum þeim fjölmörgu aðildarfyrirtækjum Samorku sem tóku virkan þátt og lögðu til efni og eru auðvitað margir þátttakendur á þinginu í dag.

Markmið og tilgangur skýrslunnar var að draga fram staðreyndir á grundvelli faglegra sjónarmiða og upplýsinga um lykilþætti á sviði orkumála á aðgengilegu formi til upplýsinga fyrir stjórnvöld, hagaðila og almenning. Mér þykir hafa tekist vel til þar sem yfirgripsmikið upplýsingarit um orkumál er komið fram. Skýrslan tæpir einnig á helstu verkefnum og áskorunum sem við stöndum frammi fyrir með sérstakri vísan til loftslagsmála. Skýrslan var unnin í víðtæku samráði, eins miklu og takmarkaður tími gaf tækifæri til.

Meginniðurstaða skýrslunnar er að í gegnum loftslagsmarkmið Íslands þurfi að móta betur þá orkuframleiðslu og orkuflutning sem eru grunnur að framfylgd orkuskipta í samfélaginu. Við orkuskipti bætist einnig orkuþörf til frekari vaxtar atvinnuvega. Bætt orkuöryggi kallar á aukna raforkuframleiðslu og öflugra flutnings- og dreifikerfi sem aftur kallar á heildrænt skipulag orkukerfisins og samþættingu verkferla. Sex sviðsmyndir eru settar fram í skýrslunni, en þær spanna allt frá lítilli sem engri viðbót við raforkuframleiðslu Íslands til ríflega tvöföldunar hennar fram til ársins 2040. Þá á eftir að svara þeim spurningum hvort margvísleg áform nái fram að ganga um uppbyggingu nýrrar útflutningsstarfsemi sem myndu auka verulega á eftirspurn eftir raforku. Enn fremur hafa komið fram stórtæk áform um raforkuöflun til framleiðslu vetnis og rafeldsneytis.

Skýrslan dregur fram lýsingu á núverandi stöðu sem við höfum kynnst á undanförnum misserum. Eftirspurn eftir grænni orku hefur sjaldan verið meiri en á sama tíma höfum við búið við slæmt vatnsár og orkuskerðingum og takmarkað hefur verið virkjað. Við heyrum af töpuðum tækifærum í atvinnumálum um land allt vegna takmarkaðs aðgengis að raforku sem heftir lítil sem stór fyrirtæki. Það er sárt til þess að vita ef spennandi tækifæri fara forgörðum hvort sem er vegna orkuskorts eða flutningstakmarkana.

Langtímaorkustefna fyrir Ísland var kynnt fyrir um ári síðan. Orkustefnan var unnin í þverpólitísku samstarfi og í samráði við hagsmunaaðila. Fulltrúar allra þingflokka auk fjögurra ráðuneyta áttu sæti í starfshópnum sem vann stefnuna. Einhugur var um niðurstöðuna. Stefnan leysir auðvitað ekki öll ágreiningsmál en hún leiðir fram hvað við getum verið sammála um þegar við setjumst niður með einlægan vilja til að koma okkur saman um grundvallarmarkmið. Það er ekki bara mikilvægt heldur nauðsynlegur vegvísir til framtíðar. Samhliða orkustefnunni kom fram aðgerðaráætlun með 38 skilgreindum aðgerðum og verkefnum. Ég sé fyrir mér að þessi áætlun verði lifandi skjal þar sem fram komi þau fjölmörgu verkefni sem unnið er að hörðum höndum í ráðuneytinu, með okkar undirstofnunum og öðrum samstarfsaðilum eftir atvikum. Uppfærð orkuskiptaáætlun sem boðuð er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar mun varða okkur veginn inn í framtíðina.

Orkuöflun er mikilvægur þáttur í nýtingu náttúruauðlinda landsins sem býr yfir fjölbreyttum orkuauðlindum á stórum landssvæðum. Jafnframt einkennist Ísland af sérstæðri náttúru og landslagi sem hefur hátt verndargildi. Nýting svæðisbundinna orkuauðlinda vegur því þungt í þeirri mikilvægu stefnumörkun að leita jafnvægis á milli nýtingar og náttúruverndar.

Lög um verndar- og orkunýtingaráætlun landsvæða (rammaáætlun) hafa að markmiði að tryggja að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati. Þar verði tekið tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta og annarra gilda sem varða þjóðahag, svo og hagsmuni þeirra sem nýta þessi sömu gæði með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Alþingi hefur ekki afgreitt rammaáætlun frá 2015. Nauðsynlegt er að höggva á þá hnúta sem verið hafa í meðferð rammaáætlana eða að finna annað fyrirkomulag sem hefur í för með sér bætta málsmeðferð um orkuframkvæmdir.

Orkumálin hafa skýrst nokkuð með stöðuskýrslu og stefnu. Við erum komin með heildrænt stöðumat sem auðveldar okkar vegferð. Stefnan leiðir okkur inn í nýja tíma með sjálfbæra þróun að leiðarljósi þar sem jafnvægi ríkir á milli efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta. Okkur er falið að gæta vandlega að hinu viðkvæma jafnvægi milli verndar náttúrunnar og nýtingar hennar. Aðeins með því munum við uppskera sátt um orkumálin til framtíðar litið. Þannig uppfyllum við markmiðið um sjálfbæra þróun sem er að mæta þörfum nútímans án þess að aftra kynslóðum framtíðar að mæta sínum þörfum.

Nú um stundir eru viðsjárverðir tímar með stríðsátökum í Evrópu. Við getum verið þakklát fyrir það hér á landi að búa við frið og öryggi og þar með talið orkuöryggi. En nú háttar til að mörg ríki Evrópu, okkar nágrannalönd, eru háð orkuinnflutningi frá óvinveittu ríki, með mismiklum hætti þó. Í Evrópu er unnið hörðum höndum að því að komast út úr þeim aðstæðum með því að finna leiðir til að hætta viðskiptum og innflutningi jarðgass og olíu frá Rússlandi. Allt kapp er lagt á að flýta orkuskiptum enn frekar með innlendri orkuvinnslu. Það er á svona tímum sem við sjáum verðmæti auðlinda okkar með enn gleggri hætti. Okkar innlenda endurnýjanlega orka vinnur að báðum mikilvægum markmiðum samtímis, loftslagsmarkmiðum og auknu orkuöryggi. Fyrri orkuskipti sem landið gekk í gegnum eftir olíukrísurnar á síðustu öld hafa komið okkur í þá öfundsverða og öruggu stöðu að megnið af framleiðslunni, þ.e. 85% hennar er af innlendum uppruna. Afgangurinn er olían sem knýr farartækin okkar og er flutt inn að mestu leyti frá vina- og frændþjóð okkar Noregi. En þó staðan sé þessi þá gæti hún verið enn betri með því að öðlast fullt orkusjálfstæði með okkar eigin framleiðslu raforku eða rafeldsneytis. Langtímamarkmið fær enn aukið vægi þegar það skoðast út frá sjónarhóli þjóðaröryggis til viðbótar við knýjandi loftslagsáskoranir.

Ný verkefni taka langan tíma frá því að vera hugmynd á blaði til framkvæmdar og gangsetningar á sama tíma erum við að horfa fram á gríðarstórar áskoranir til skemmri og lengri tíma. Það verður öllum að vera ljóst sem koma að einhverju leyti að framgangi orkumála hér á landi, hve tíminn er takmarkaður. Við verðum að vinna hratt en á sama tíma vanda okkur og vinna að málunum í sátt. Framtíðin er jú í dag.

Ágætu gestir Samorkuþings,

Ég læt hér staðar numið og vil nota tækifærið til að hvetja aðildarfyrirtæki Samorku áfram til dáða á þessum tímamótum, í þeirri sameiginlegu vegferð sem við erum á í átt að fullum orkuskiptum á Íslandi. Njótið vel afmælisþingsins og ég vonast til að eiga þess kost að hitta ykkur síðar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum