Hoppa yfir valmynd
03. desember 2021 Utanríkisráðuneytið

Föstudagspósturinn 3. desember 2021

Heil og sæl á þessum fyrsta föstudegi á aðventunni.

Stærstu fréttir þessarar viku eru án efa ráðherraskiptin, en á mánudag tók Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir við lyklavöldum í utanríkisráðuneytinu úr hendi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Guðlaugur Þór gleymdi að vísu næstum því að afhenda sjálft lyklaspjaldið, eins og farið var yfir í skemmtilegri frétt á Vísi við tilefnið.

Þórdís Kolbrún er fjórða konan til að gegna embætti utanríkisráðherra og jafnframt yngsti utanríkisráðherra Íslands frá upphafi.

Það má með sanni segja að Þórdís Kolbrún hafi lent á hlaupum í embætti, en sama dag og hún tók við lyklunum flaug hún út til Riga til þess að taka þátt í tveggja daga utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins. „Ég lagði áherslu á  öryggismál í Evrópu og á Norður-Atlantshafi og sameiginlegar skuldbindingar bandalagsríkja. Eins að bandalagið þurfi að bregðast við öryggisáskorunum vegna loftslagsbreytinga og vera virkur samráðsvettvangur um afvopnunarmál. Þá er brýnt að jafnréttissjónarmið og málefni kvenna, friðar og öryggis verði í hávegum höfð, ásamt þeim sameiginlegu gildum og samstöðunni sem bandalagið stendur fyrir,“ sagði Þórdís Kolbrún utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra meðal annars að fundi loknum.

Á samfélagsmiðlum sögðum við einnig frá því að í tilefni fundar Atlantshafsbandalagsins heimsótti Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri bandalagsins, fjölþjóðaliðið í Lettlandi þar sem Ísland er meðal þátttökuþjóða.

 

Frá Riga flaug ráðherra yfir til Stokkhólms til að sækja ráðherrafund Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Í ræðu sinni lagði hún áherslu á að þátttökuríkin 57 virtu sameiginlegar skuldbindingar og tækju saman höndum um að vinna að friði og stöðugleika þar sem blikur væru á lofti víða í álfunni. Hún benti á að stöðugleiki landamæra, friðsamleg úrlausn deilumála, og vernd mannfrelsis og mannréttinda væru grundvöllur stofnunarinnar.

Í Stokkhólmi notaði Þórdís Kolbrún tækifærið og undirritaði loftferðasamning Íslands og Úkraínu. Um er að ræða fyrsta milliríkjasamning sem hún skrifar undir í embætti utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. „Loftferðasamningar eru meðal þeirra mikilvægu viðskiptasamninga sem tryggja flutninga til og frá Íslandi, auk þess að greiða aðgang íslenskra flugrekenda að alþjóðamörkuðum,“ sagði Þórdís Kolbrún, en hún undirritaði samninginn ásamt Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu.

Þórdís Kolbrún átti auk þess alls sjö tvíhliða fundi samhliða ráðherrafundunum í Riga og Stokkhólmi, með utanríkisráðherrum Belgíu, Litháen, Spánar, Póllands, Aserbaísjan og Úkraínu, auk þess sem hún fundaði með evrópumálaráðherra Írlands. Eins og sjá má á samantekt ráðherra á Twitter voru tvíhliða samskipti ríkjanna og málefni líðandi stundar í alþjóðapólitík efst á baugi á fundunum.

Það hefur einnig verið nóg um að vera hjá sendiskrifstofum okkar í vikunni.

Í Genf lauk Ísland, ásamt fjölda aðildarríkja alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO, við nýtt samkomulag að samræmingu regluverks þjónustuviðskipta. Harald Aspelund, fastafulltrúi Íslands, fagnaði samkomulaginu og sagði jafnréttisákvæði þess undirstrika hversu mikilvægt sé að ábati þjónustuviðskipta dreifist jafnt milli karla og kvenna.

 

Færsla sendiráðs Íslands Í Moskvu, um sýningu Ragnars Kjartanssonar, Santa Barbara – A Living Sculpture, vakti töluverða athygli í vikunni fyrir þær sakir að sjálfur Vladimí Pútín forseti Rússlands heimsótti sýninguna á miðvikudag, en formleg opnun verður laugardaginn 4. desember. Í tilefni af sýningunni komu aðstandendur hennar og nokkrir gestir saman í sendiráðinu í Moskvu í boði Árna Þórs Sigurðssonar sendiherra.

 

Fleiri loftferðasamningar voru undirritaðir í vikunni en þann 29. nóvember undirritaði Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Danmörku, loftferðasamning Íslands og Mexíkó ásamt Carlos Pujalte Piñeiro, sendiherra Mexíkó gagnvart Íslandi með aðsetur í Danmörku.

 

Þá bauð Helga Hauksdóttir á sunnudag aðilum í tónlistar- og kvikmyndageiranum í samvinnu við Record in Iceland, Film in Iceland og Vision Denmark til kynningarmóttöku í sendiráðsbústaðnum, þar sem Ísland var kynnt sem ákjósanlegur staður fyrir kvikmyndatökur og tónlistarupptökur.

Í London stóð sendiráðið einnig fyrir viðburði með Record in Iceland.

 

Í Malaví slógust fulltrúar Íslands í för með Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) til TA Makanjira í Mangochi héraði þar sem yfirvöldum var afhent nýendurgert dómshús, sem var endurgert með stuðningi Íslands. Dómshúsið færir réttarþjónustu nær fólkinu í samfélaginu, en það þurfti áður að ferðast yfir hundrað kílómetra til þess að fá aðgang að réttarþjónustu.

Í París stóð sendiráð Íslands fyrir kynningu á útgáfu á Egils sögu sem nýverið var gefin út í Frakklandi í franskri þýðingu Torfa H. Tulinius, prófessors við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

Guðni Bragason, sendiherra Íslands í Nýju Delí, tók þátt í íslenskri kvikmyndahátíð í Chennai borg í Indlandi í síðustu viku. Á meðal kvikmynda sem sýndar voru á hátíðinni voru Bergmál eftir Rúnar Rúnarsson, Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason og Héraðið eftir Grím Hákonarson. Í ávarpi sínu benti sendiherrann meðal annars á að þetta væri fyrsti íslenski menningarviðburðurinn í Indlandi frá því heimsfaraldur COVID-19 hófst.

Í Washington stóð sendiráð Ísland fyrir viðburði til heiðurs Jessicu Stern sem fyrr á þessu ári var tilnefnd af Joe Biden forseta Bandaríkjanna til að gegna embætti sérstaks erindreki í málefnum hinsegin fólks.

 

Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra Íslands í Washington, tók einnig þátt í fjarfundi um norræna viðskiptamódelið og hvað Bandaríkin geti lært af Norðurlöndunum.

Jörundur Valtýsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, tók þátt í fundi um kynbundið ofbeldi á fimmtudag.

Þá tók Pétur Ásgeirsson sendiherra þátt í fundi Norðurskautsráðsins í Salekhard í Rússlandi í vikunni.

Á mánudag í næstu viku tekur ráðherra þátt í OECD Development Center fundi. Hún mun flytja ávarp á Nordica á miðvikudag í tilefni Alþjóðadags viðskiptalífsins og á miðvikudag tekur hún einnig þátt í áheitaráðstefnu Neyðarsjóðs Sameinuðu þjóðanna (CERF).

Fleira var það ekki. Minnum á Heimsljós.

Bestu kveðjur frá upplýsingadeild.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum