Hoppa yfir valmynd
22.05. 2018 Utanríkisráðuneytið

Heimsmarkmiðaspil gefið út á íslensku fljótlega

“Það er ekki amalegt að geta kynnt sér þýðingarmikil heimsmál, kennt börnum sínum hvað sjálfbærni er og jafnvel æft sig í erlendu tungumáli í leiðinni og allt þetta á meðan spilað er skemmtilegt borðspil,” segir í frétt Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu (UNRIC) þar sem kynnt nýtt borðspil sem UNRIC, Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna, hefur hannað og heitir “Áfram Heimsmarkmiðin.”.Spilið verður fljótlega tilbúið á íslensku en þegar má finna ensku útgáfuna á vefsíðunni www.go-goals.org, “og hefja leik og æfa sig til dæmis í ensku í leiðinni,” eins og segir í fréttinni.

„Það er mjög einfalt að byrja að spila og það kostar ekki neitt,“ segir Fabienne Pompey, umsjónarmaður spilsins. „Allt sem þarf til er að hlaða því niður af netinu, prenta, klippa út og spila.“

Pompey leggur áherslu á að þótt markhópurinn séu börn á grunnskólaaldri geti það gagnast öðrum, til dæmis við að æfa sig í erlendu tungumáli. „Tungumálakennarar geta látið nemendur sína spila og nota það sem tæki til að æfa tungumálið og læra um sjálfbæra framtíð i leiðinni.“

Spilið er nú til á átta tungumálum: ensku, frönsku, þýsku, spænsku, kínversku, hollensku og grísku og Norðurlandamálin við bætast við í júní. Útgáfur á arabísku, rússnesku, úrdu og slóvenska eru í vinnslu.

Auk þess að vera kjörið tækifæri til að æfa sig í tungumálum, gefur spilið innsýn í það hvernig hver og einn hefur hlutverki að gegna sem einstaklingur, hluti af liðsheild og ábyrgur borgari, við að móta framtíð jarðarinnar. Og það sem meira er, spilið gefur börnum hlutverk. Við þurfum á því að halda að unga kynslóðin leiki lykilhlutverk í að byggja upp bjarta framtíð.

„Spilið gefur börnum tækifæri til að skilja heiminn betur og vera virk," segir Fabienne Pompey.

Heimsmarkmiðaspilinu er ætlað að hvetja fólk til að leggja sín lóð á vogarskálarnar til að ná Heimsmarkmiðunum og deila verkum sínum og benda á leðir til þess að ná þeim á samskiptamiðlum með því að nota myllumerkið #SDGGame. Þátttakendur eru líka hvattir til þess að semja sína eigin spurningar og deila þeim á samskiptamiðlum með sama myllumerki. „Við viljum hvetja fólk til að halda samtalinu áfram líka þegar spilinu lýkur,“ segir Pompey.

“Þá vitið þið hvað til þarf. Allt sem þarf er prentari, skæri, lím og þið getið byrjað. Svo verður teningunum kastað í þágu betri, sjálfbærari heims!,” segir í lok fréttarinnar.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum