Hoppa yfir valmynd
26.09. 2018 Utanríkisráðuneytið

Fundur kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum

Höfuðstöðvar Alþjóðabankans í Washington D.C. - myndWorld Bank / Simone D. McCourtie (CC BY-NC-ND 2.0)

Fundur kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum var haldinn dagana 24. og 25. september sl. í Reykjavík. Kjördæmið hittist reglulega í höfuðborgum ríkjanna til að samræma afstöðu og bera saman bækur í aðdraganda ársfunda og vorfunda Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en næsti ársfundur verður haldinn dagana 12.-14. október nk.

Það sem ber hæst í nýjum áherslum í starfi Alþjóðabankans er hvernig nýta má mannauð og nýja tækni til framþróunar. Á sama tíma og kallað er eftir auknum fjárfestingum á sviði heilbrigðis og menntunar til að ná megi Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, er vaxandi skuldavandi fátækari þjóða heims áhyggjuefni.    

Alþjóðabankinn er ein af fjórum áherslustofnunum í þróunarsamvinnu Íslands. Ísland tekur virkan þátt í stefnumótun og fjölþjóðastarfi Alþjóðabankans í gegnum kjördæmi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna og deila ríkin átta stjórnarsæti í bankanum og samræma málflutning sinn og afstöðu til einstakra málefna.

Mynd: "Word Bank Group Headquarters" eftir World Bank / Simone D. McCourtie (CC BY-NC-ND 2.0)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum