Hoppa yfir valmynd
19.10. 2018 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið vill fjölga samstarfsaðilum að þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð

Barn í SOS barnaþorpi í Gulu, Úganda. Ljósmynd: gunnisal - mynd

„Ráðuneytið vonast til þess að fjölga samstarfsaðilum á þessu sviði, sérstaklega með skírskotun til áherslu á mannréttindi og samstarf við atvinnulífið,“ segir Vilhjálmur Wiium deildarstjóri tvíhliða þróunarsamvinnu í utanríkisráðuneytinu.

Eins og flestum er kunnugt starfar utanríkisráðuneytið með íslenskum félagasamtökum að alþjóðlegri þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. „Ár hvert veitir utanríkisráðuneytið styrki til verkefna í þróunarríkjum sem annað hvort njóta stuðnings frá félagasamtökum eða eru framkvæmd af þeim. Á síðasta ári námu heildarframlög ráðuneytisins til slíkra verkefna tæplega 300 milljónum króna,“ segir Vilhjálmur og bendir á að yfirlit yfir þau verkefni sem styrkjum var úthlutað til á síðasta ári sé að finna á vef utanríkisráðuneytisins.

Að sögn Vilhjálms stendur núna yfir endurskoðun á úthlutunarreglum ráðuneytisins til slíkra verkefna í samræmi við nýja reglugerð fjármála- og efnahagsráðuneytisins um styrkveitingar ráðherra nr. 642/2018.

Hafi samtök áhuga á að fá nánari upplýsingar um samstarfsmöguleika við ráðuneytið í málaflokknum eða styrkveitingar til félagasamtaka eru forráðamenn þeirra hvattir til að senda tölvupóst á netfangið [email protected] með efnislínunni „Samstarf við félagasamtök“.

Til stendur að auglýsa eftir umsóknum frá félagasamtökum um styrki til þróunarsamvinnu- og mannúðarverkefna á næstunni.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum