Hoppa yfir valmynd
27.11. 2018 Utanríkisráðuneytið

Fátækustu borgarbörnin verr sett en börn í sveitum

Ljósmynd frá Kampala: gunnisal - mynd

Milljónir fátækustu barnanna sem alast upp í borgum eru líklegri til að deyja ung borið saman við börn í dreifbýli. Fátækustu borgarbörnin eru líka verr sett þegar kemur að menntamálum og þau eru ólíklegri til að ljúka grunnskólanámi en jafnaldrar þeirra til sveita. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) sem kom út í dag.

Í skýrslunni er sjónum beint að því sem skýrsluhöfundar kalla þversögnina í þéttbýlinu. Hún felst í því að almennt er staða barna í borgarsamfélögum betri en staða barna til sveita vegna þess að þar eru  hærri tekjur, betri grunnviðir og betri þjónusta, en þegar horft er sérstaklega á stöðu barna í fátækrahverfum stórborga blasir við önnur mynd og ljótari.

Skýrslan byggir á greiningu í 77 lágtekju- og millitekjuríkjum með tíu mælikvörðum sem snúa að velferð barna. Niðurstaðan er sú að í flestum löndum vegnar borgarbörnum betur en börnum í strjálbýli – að jafnaði. En meðaltalið segir ekki alla söguna og dylur ótrúlegan ójöfnuð innan borgarsamfélagsins, segir í skýrslunni.

„Fyrir foreldra í dreifbýli virðast ástæðurnar fyrir því að börnin flytji til borganna augljósar: þar eru fleiri atvinnutækifæri, betri heilsugæsla og meiri menntunarmöguleikar,“ segir Laurence Chandy yfirmaður rannsókna hjá UNICEF. „En borgarbörn njóta ekki öll kosta borgarinnar og við getum sýnt fram á að milljónir barna í borgum eru verr sett en jafnaldrar í sveitum.“

Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar eru 4,3 milljónir barna í borgum líklegri til að deyja fyrir fimm ára aldur en jafnaldrar þeirra í dreifbýli. Einnig sýnir skýrslan að 13,4 milljónir barna í borgum eru ólíklegri til að ljúka grunnskólanámi en jafnaldrar þeirra til sveita.

Talið er að allt að einn milljarður manna búi í fátækrahverfum, þar af hundruð milljóna barna. Stækkun borga er mest í Afríku og Asíu. Talið er að árið 2030 verði sjö af tíu stærstu borgum heims í þessum tveimur álfum. Þar fjölgar íbúum borga um 3,7% á ári.

Íslensk stjórnvöld fjármagna að hluta verkefni á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar í þremur fátækrahverfum Kampala, höfuðborgar Úganda. Þar hafa innlend félagasamtök, YUDEL, starfað um langt árabil með sárafátækum unglingum og rekið verkmenntamiðstöðvar á ýmsum sviðum, bæði til sjálfseflingar, en ekki síður til þess að ungmennin öðlist nægilega hæfni til að verða gjaldgeng á vinnumarkaði og geti séð sér farborða.

UNICEF er ein af áherslustofnunum Íslands í fjölþjóða þróunarsamvinnu. Framlög utanríkisráðuneytisins til UNICEF á síðasta ári námu rúmum 354 milljónum króna til fjölmargra verkefna eins og sjá má á yfirliti á vef ráðuneytisins.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

10. Aukinn jöfnuður
4. Menntun fyrir öll
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum