Hoppa yfir valmynd
31.12. 2018 Utanríkisráðuneytið

Heimsljós 2018: Mest lesnu fréttirnar

Eitt hundrað milljóna króna framlag utanríkisráðuneytisins til neyðaraðstoðar í Jemen var mest lesna fréttin í Heimsljósi á árinu sem er að líða. Fréttin birtist um miðjan nóvember. Þar sagði að Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefði ákveðið að verja 100 milljónum til neyðaraðstoðar í Jemen og skipta framlaginu jafnt á milli Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).

Önnur mest lesna frétt ársins var um leit ráðuneytisins að unglingi fæddum árið 2003 til að taka þátt í kynningu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. „Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku og ensku, vera ófeiminn og áhugasamur um betri heim,“ sagði í fréttinni og rúmlega 80 umsóknir bárust. Fyrir valinu varð Elíza Gígja Ómarsdóttir, unglingsstúlka úr Fossvoginum í Reykjavík, sem fór til Úganda í tíu daga ferð. Frásögnin birtist í röð þriggja sjónvarpsþátta á aðventunni undir yfirskriftinni: Heimsmarkmið Elízu.

Þriðja mest lesna frétt ársins í Heimsljósi var frétt um styrkveitingu, 55,5 milljónir vegna átakanna í Sýrlandi, sem utanríkisráðherra tilkynnti um í janúar. Um var að ræða framlag til Rauða krossins á Íslandi til þriggja verkefna í þágu sýrlenskra flóttamanna í Líbanon og Tyrklandi en einnig var hluta  framlagsins varið til bágstaddra heimamanna í löndunum tveimur.

Fjórða mest lesna fréttin var um stofnun ungmennaráðs Stjórnarráðsins vegna Heimsmarkmiðanna og fimmta mest lesna fréttin var hrós í garð utanríkisráðuneytisins frá UNICEF fyrir „rausnarlegan stuðning“ en sú frétt birtist í ársbyrjun.

Tíu mest lesnu fréttir Heimsljóss 2018.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum