Hoppa yfir valmynd
04.01. 2019 Utanríkisráðuneytið

Ótrúleg lífsreynsla að starfa í Cox Bazar

Níu ára stúlkan í Cox Bazar. Ljósmynd: Rauði krossinn. - mynd

„Ótrúleg lífsreynsla,“ segir Ingibjörg Ösp Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur sem nýkomin er heim úr flóttamannabúðum Róhingja í Cox Bazar í Bangladess. Hún fór þangað í október á nýliðnu ári ásamt öðrum hjúkrunarfræðingi, Kolbrúnu Þorsteinsdóttur, en þær voru báðar að fara fyrstu ferðir sínar sem sendifulltrúar Rauða krossins á Íslandi. Alls hafa 26 sendifulltrúar á vegum Rauða krossins starfað við neyðartjaldsjúkrahús í kjölfar flótta rúmlega níu hundruð þúsund Róhingja frá Mjanmar til Bangladess.

Í frétt frá Rauða krossinum er Ingibjörg Ösp spurð um það hvað sé henni eftirminnilegast úr ferðinni og hún svarar að níu ára stúlka sé henni ofarlega í huga. „Hún býr í flóttamannabúðunum í Cox Bazar og lenti í umferðarslysi þegar hún þurfti að fara yfir götu til þess að kaupa sér banana. Eftir slysið var brjóstkassi hennar illa farinn og var farið með hana á neyðartjaldsjúkrahús Rauða krossins sem er á þessu svæði. Við nánari skoðun kom í ljós að stúlkan var með nokkur brotin rifbein, skurði og mar. Starfsfólk Rauða krossins tók á móti henni, framkvæmdi á henni aðgerð og hlúði að meiðslum hennar. Hún lá á barnadeild í rúma viku og fór svo heim til sín aftur.“

Í fréttinni kemur fram að ákveðið hafi verið að sjúkrahúsið myndi starfa út árið 2018 vegna þess hve þörfin hafi verið mikil en almennt séu neyðartjaldsjúkrahús aðeins sett upp til afar skamms tíma. „Sjúkrahúsið hefur veitt rúmlega 52.000 einstaklingum aðstoð síðan í október 2017. Af þessu er ljóst að mikil þörf er á því að halda úti starfandi neyðarsjúkrahúsi á þessu svæði þar sem gríðarlegur fjöldi flóttamanna er á þessu svæði sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Frá og með 1. janúar 2019 mun Rauð hálfmáninn taka við rekstri spítalans og verður honum breytt í almenna heilsugæslu til að halda þessari lífsnauðsynlegu aðstoð áfram,“ segir í frétt Rauða krossins.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum