Hoppa yfir valmynd
17.01. 2019 Utanríkisráðuneytið

Íslenskur stuðningur við börn í flóttamannabyggðum Úganda

Börn flóttafólks í Suður-Súdan koma til með að njóta framlags Íslands. Ljósm. gunnisal - mynd

Tæplega 20 þúsund börn í norðurhluta Úganda koma til með að njóta framlags frá utanríkisráðuneytinu sem hefur ákveðið að styrkja Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) í verkefnum sem tengjast vatns-, salernis- og hreinlætismálum með tæplega 120 milljóna króna framlagi. Um er að ræða verkefni við skóla og heilsugæslustöðvar í héruðum þar sem eru blandaðar byggðir flóttafólks frá Suður-Súdan og heimamanna, í Arua og Yumbe.

„Stuðningur við uppbyggingu í vatns- og hreinlætismálum, í samræmi við innlenda staðla fyrir heilsugæslustöðvar og skóla, mun stuðla að heilsusamlegri aðstöðu fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk, nemendur og kennara,“ segir Unnur Orradóttir Ramette sendiherra Íslands í Úganda. „Við erum þess vegna ánægð með að framlag okkar Íslendinga nýtist til að draga úr barnadauða og koma í veg fyrir vatnsborna sjúkdóma á þessu svæði,“ bætir hún við.

Nýleg úttekt leiddi í ljós að á 99 heilsugæslustöðum í þessum byggðarlögum voru 85% með takmarkaðan aðgang að vatni og ástandið í skólum var litlu betra.

„Markmið UNICEF er að bæta salernisaðstöðu og tryggja sjálfbærni í vatns- og hreinlætismálum á svæðum sem njóta takmarkaðrar þjónustu, meðal annars í skólum og heilsugæslustöðvum. Fjárfesting í bættri þjónustu á þessum sviðum skapar betri aðstæður til náms og heilsusamlegri aðstæður fyrir konur og börn á heilsugæslustöðvum,“ segir Dr. Doreen Mulenga, fulltrúi UNICEF í Úganda. „Við erum þakklát fyrir stuðninginn frá ríkisstjórn Íslands sem kemur til með að draga úr vatnsbornum sjúkdómum meðal flóttabarna í þessum samfélögum,“ bætir hún við.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

6. Hreint vatn og hreint
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum