Hoppa yfir valmynd
28.01. 2019 Utanríkisráðuneytið

Brottfall nemenda nánast horfið eftir stuðning Íslendinga

Fyrir fáeinum árum voru aðeins fjórar nothæfar kennslustofur í Milimbo grunnskólanum í Mangochihéraði í Malaví og flestum nemendunum var kennt undir trjám á skólalóðinni. Nú eru aðstæðurnar aðrar og betri: Allir nemendur skólans eru komnir undir þak, átján kennslustofur komnar í gagnið, námsárangurinn er betri og brottfall nemenda hefur nánast horfið, hefur farið úr 20 prósent í tæplega tvö prósent. 

Skýringin á þessum umskiptum í Milimbo skólanum er stuðningur héraðsyfirvalda í Mangochi við skólann gegnum íslenska þróunarsamvinnu. Menntun er einn lykilþátta í samstarfi Íslendinga og héraðsstjórnarinnar, tólf grunnskólar fá sérstakan stuðning og Milimbo skólinn er einn þeirra.

Stuðningurinn nær ekki aðeins til ytri búnaðar eins og byggingu skólastofa, kaupa á skólaborðum og stólum og bæta salernisaðstöðu, heldur einnig til þjálfunar kennara og kaupa á námsbókum. Þá fá nemendur skólans máltíð á hverjum degi en Íslendingar hafa um langt árabil stutt Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna við að koma upp heimaræktuðum skólamáltíðum fyrir malavíska nemendur. Mæður barnanna sjá um þá þjónustu í sjálfboðaliðastarfi.   

Í tilefni af heimsókn formanns og annars varaformanns utanríkismálanefndar Alþingis stigu fulltrúar foreldra og skólastjórnarinnar fram og þökkuðu af hjartans einlægni fyrir ómetanlega stuðning við æsku Malaví. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbroti lýstu báðir þingmennirnir yfir mikilli ánægju með framfarirnar í skólanum.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum