Hoppa yfir valmynd
19.02. 2019 Utanríkisráðuneytið

Nýtt verkefni SOS Barnaþorpanna um fjölskyldueflingu

Ljósmynd frá Filipsseyjum: SOS Barnaþorpin. - mynd

Utanríkisráðuneytið hefur veitt SOS Barnaþorpunum á Íslandi rúmlega 45 milljóna króna styrk til að fjármagna fjölskyldueflingu á Filippseyjum. Slík verkefni á vegum SOS á Íslandi eru því orðin þrjú talsins samtökin eru þegar að styðja við bakið á sárafátækum barnafjölskyldum að verða sjálfbærar í Eþíópíu og Perú. Mótframlag SOS fyrir verkefnið á Filippseyjum eru rúmar 11 milljónir króna sem fjármagnaðar eru af SOS-fjölskylduvinum, mánaðarlegum styrktaraðilum SOS á Íslandi

Fjölskyldueflingin á Filippseyjum verður á Samar-eyju skammt frá SOS barnaþorpunum Calbayog og Tacloban. Það hefst 1. apríl næstkomandi og er til þriggja ára. Fram kemur á vef SOS Barnaþorpanna að verkefnið nái til 1800 barna og ungmenna „og snýst um að klæðskerasniðna aðstoð til barnafjölskyldna sem eiga erfitt með að mæta þörfum barnanna og börnin eiga á hættu að missa forsjá foreldra sinna.“

Þar segir ennfremur að nærri 13 milljónir af 38 milljónum barna á Filippseyjum séu í fjölskyldum sem lifa undir fátæktarmörkum eða yfir 30% barnafjölskyldna. „Fátæktin gerir börn sérstaklega berskjöldið fyrir ógnum af ýmsu tagi og til að mynda er áætlað að um 300 þúsund börn séu fórnarlömb mansals.“

Einu fjölskyldueflingarverkefni á vegum SOS á Íslandi er nú þegar lokið með mjög góðum árangri í Gíneu Bissá. Verkefnið í Eþíópíu hófst í janúar 2018 og gengur framar vonum. Í Perú er verkefnið í yfirumsjón SOS í Noregi en með aðkomu SOS á Íslandi. SOS á Íslandi fjármagnar því þrjú fjölskyldueflingarverkefni í heiminum í dag.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum