Hoppa yfir valmynd
21.02. 2019 Utanríkisráðuneytið

Ungmenni eru kyndilberar heimsmarkmiðanna

Ungmennaráð Heimsmarkmiðanna. Ljósm. Áslaug Karen Jóhannsdóttir. - mynd

„Þátttaka ungs fólk í ákvarðanatöku hvað varðar sjálfbæra þróun er nauðsynleg ef við ætlum að ná heimsmarkmiðunum fyrir 2030. Ef við ætlum að takast almennilega á við stærstu áskoranir samtímans, þar með talið áhrif loftslagsbreytinga, fátækt, kynjamismun, átök og fólksflutninga þá þurfum við á kröftum ungs fólks að halda,“ sagði í Fésbókarfærslu Ungmennaráðs Sameinuðu þjóðanna í gær í tilefni útgáfu Sameinuðu þjóðanna á skýrslu um ungmenni og heimsmarkmiðin.

Skýrslan sem nefnist „Youth and the 2030 Agenda for Sustainable Development“ fjallar bæði um hlutverk ungmenna sem þátttakenda í beinum aðgerðum í þágu sjálfbærrar þróunar en einnig þann ávinning sem ungt fólk á að fá með heimsmarkmiðunum. Þau voru sem kunnugt er samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna haustið 2015, meginmarkmiðin eru sautján talsins, og skilgreind undirmarkmið 169. Þau eiga að vera komin í höfn árið 2030.

Í nýju skýrslunni segir að ungmenni séu kyndilberar heimsmarkmiðanna og hafi mikilvægu hlutverki að gegna. Eins og ungmennaráðið bendir á í stöðufærslu sinni eru ungmenni á aldrinum 15 til 24 ára um 16% mannkyns.

Tólf fulltrúar á aldrinum þrettán til átján ára voru á síðasta ári skipaðir í ráðið og þeir halda reglulega fundi undir handleiðslu sérfræðings í þátttöku barna og ungmenna hjá UNICEF á Íslandi.

Meginmarkmið ungmennaráðsins er að vekja athygli á heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun, bæði meðal ungmenna og innan samfélagsins í heild. Hlutverk ráðsins verður að fræðast og fjalla um Heimsmarkmiðin ásamt því að vinna og miðla gagnvirku efni á samfélagsmiðlum um markmiðin og sjálfbæra þróun. Ungmennaráðið mun jafnframt veita stjórnvöldum, í gegnum verkefnastjórn heimsmarkmiðanna, aðhald og ráðgjöf við innleiðingu markmiðanna ásamt því að funda árlega með ríkisstjórn.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum