Hoppa yfir valmynd
05.03. 2019 Utanríkisráðuneytið

Verðandi forseti Alþjóðabankans á fundi með ráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

Guðlaugur Þór og David Malpass. - mynd

„Alþjóðabankinn gegnir lykilhlutverki í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í bankanum hefur tekið virkan þátt í starfi og stefnumótun bankans. Kjördæmið hefur meðal annars verið leiðandi í umræðunni um jafnan rétt karla og kvenna í þróunarstarfi. Þegar Ísland tekur sæti í stjórn bankans fyrir hönd kjördæmisins síðar á þessu ári gefst enn betra tækifæri til að fylgja eftir þessum áherslum í starfi bankans“, sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra eftir fund með David Malpass aðstoðarfjármálaráðherra Bandaríkjanna í gær. Fundinn sátu einnig ráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í kjördæmi Alþjóðabankans.

David Malpass er frambjóðandi Bandaríkjanna í stöðu forseta bankans en sú staða losnaði óvænt við afsögn Jim Young Kim í byrjun árs. Ísland tekur sæti í stjórn Alþjóðabankans í sumar fyrir hönd kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Kjördæmið hefur eitt atkvæði af 25 í stjórn bankans, sem tekur ákvörðun um nýjan forseta.  

Á fundinum kynntu Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin þau málefni sem ríkin átta leggja áherslu á í málflutningi sínum innan Alþjóðabankans. Þau eru einkum á sviði jafnréttismála, mannréttinda, loftslags- og auðlindamála auk málefna sem lúta að viðkvæmum og óstöðugum ríkjum. Þá leggja löndin áherslu á að bæta mannauð í þróunarríkjum og að Alþjóðabankinn verði leiðandi á alþjóðavettvangi á sviði efnahags- og þróunarmála. 

Á fundinum var jafnframt rætt um nýlega hlutafjáraukningu bankans og hvernig hún nýtist við að ná tveimur megin markmiðum bankans, að útrýma sárri fátækt fyrir árið 2030 og auka velsæld þeirra 40 prósent jarðarbúa sem búa við hvað lökust kjör.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum