Nemendur frá fimmtán löndum útskrifast frá Sjávarútvegsskólanum
Í ávarpi við útskriftina lagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, áherslu á mikilvægi Sjávarútvegsskólans fyrir framfarir á sviði fiskveiða í þróunarríkjum. Hann sagði fiskveiðar vera mikilvæga uppsprettu næringar og forsendu matvælaöryggis víða um heim, ekki síst í viðkvæmum strand- og eyríkjum. Þar að auki hafi þrír milljarðar manna lífsviðurværi sitt af líffræðilegum fjölbreytileika sjávar og strandar.
„Þetta þekkjum við vel hér á Íslandi þar sem fiskur hefur verið lífsbjörg þjóðarinnar í aldanna rás, sem uppistaða í fæðu okkar, sem okkar aðal útflutningsvara og grundvöllur hagkerfisins,“ sagði Guðlaugur Þór í ávarpi sínu.
Heimsmarkmið 14 áréttar mikilvægi hafsins með því að kalla á eftir sjálfbærari nýtingu sjávarauðlindarinnar. Þjálfun og efling þekkingar í sjávarútvegi er þannig veigamikið framlag í því að ná heimsmarkmiði 14, sem er forsenda þess að ná mörgum öðrum heimsmarkmiðum og undirmarkmiðum þeirra.
Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna hefur verið starfræktur frá árinu 1998 og er markmið skólans að efla sérfræðiþekkingu í sjávarútvegi og fiskveiðum í þróunarríkjum. Nám við skólann felst í sex mánaða þjálfun fyrir sérfræðinga frá þróunarlöndum, en þeir sérhæfa sig á því sviði sem starf þeirra snýr að í þeirra heimalandi. Til viðbótar því námi sem fer fram á Íslandi skipuleggur Sjávarútvegsskólinn stutt námskeið í þróunarríkjum í samvinnu við heimamenn og alþjóðlegar stofnanir, en alls hafa tæplega 1100 sérfræðingar sótt slík námskeið. Auk þess styður skólinn sérfræðinga til meistara- og doktorsnáms á Íslandi.
Starfsemi skólans er að mestu fjármögnuð með opinberum framlögum til þróunarsamvinnu. Skólinn er rekinn í samstarfi við Hafrannsóknastofnun, í nánu samstarfi við Matís, Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann á Hólum, en auk þeirra kemur fjöldi annarra stofnana og fyrirtækja að starfseminni með einum eða öðrum hætti. Þetta er 21. útskrift skólans en frá upphafi hafa 392 nemendur frá yfir 50 löndum lokið námi frá Sjávarútvegsskólanum.