Hoppa yfir valmynd
14.03. 2019 Utanríkisráðuneytið

Reyna að afstýra ofbeldi gegn kvenframbjóðendum

Frá undirskrift viðbótarsamningsins: Taiwo Ajose framkvæmdastjóri Action og Ágústa Gísladóttir forstöðukona sendiráðs Íslands í Lilongwe. - mynd

Utanríkisráðuneytið hefur gegnum sendiráðið í Lilongwe í Malaví ákveðið að veita tæplega fimm milljóna króna viðbótarstuðning við 50:50 herferðina í Mangochi héraði, samstarfshéraði Íslendinga í þróunarsamvinnu. Skrifað var undir samning þess efnis á dögunum en markmiðið er að afstýra ofbeldi gegn kvenframbjóðendum í kosningabaráttunni fyrir þing- og sveitarstjórnakosningar sem verða í maí á þessu ári.

Að sögn Ágústu Gísladóttur forstöðukonu íslenska sendiráðsins í Lilongwe hafa í undanfara kosninganna komið upp ljót mál sem tengjast ofbeldi gegn frambjóðendum, einkum konum, síðast í Mangochi fyrir nokkrum vikum. „Mikilvægt er að hagsmunaaðilar, svo sem grasrótarfólk innan stjórnmálaflokka, lögregla, trúarlegir og hefðbundnar leiðtogar, verði virkjaðir til að hafna, tilkynna og fordæma ofbeldi gegn frambjóðendum,“ segir Ágústa.

50:50 herferðin snýst um að fjölga konum í sveitarstjórnum og Ágústa segir að konum sem bjóði sig fram í héraðinu hafi fjölgað umtalsvert frá fyrri kosningum. Alls hafi 37 konur boðið sig fram til sætis í héraðsstjórn – í 30 kjördeildum – og 15 konur berjist um sæti á þingi fyrir Mangochi hérað sem telur tólf kjördæmi.

„Það standa því vonir til þess að hlutfall kvenna í héraðsstjórn og á þingi hækki verulega eftir kosningarnar í vor. Af þrjátíu fulltrúm í héraðsstjórninni er engin kona og aðeins tvær konur á þingi fyrir héraðið sem á tólf þingmenn. Því er mjög mikilvægt að koma í veg fyrir að frambjóðendurnir og þeirra fylgismenn verði ekki fyrir aðkasti eða séu beittir líkamlegu og/eða andlegu ofbeldi í kosningabaráttunni og þannig dregið úr sóknarfærum þeirra,“ segir Ágústa.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum