Hoppa yfir valmynd
04.04. 2019 Utanríkisráðuneytið

Eitt af hverjum 20 börnum á Filippseyjum yfirgefið, munaðarlaust eða vanrækt

SOS Barnaþorpið í Tacloban á Filipppseyjum. Fjölskyldueflingin nær til nágrennis þess. Ljósmynd: SOS - mynd

Fjölskyldueflingarverkefni SOS Barnaþorpanna á Filippseyjum hófst með formlegum hætti í byrjun mánaðarins. SOS á Íslandi fjármagnar verkefnið með stuðningi utanríkisráðuneytisins sem lagði til rúmar 45 milljónir króna. Mótframlag SOS eru rúmar 11 milljónir króna og það er fjármagnað af styrktaraðilum SOS á Íslandi sem kallast SOS-fjölskylduvinir.

Í frétt á vef SOS kemur fram að verkefnið á Filippseyjum sé til þriggja ára. Það nær til 1800 barna og ungmenna og snýst um klæðskerasniðna aðstoð við barnafjölskyldur „sem eiga erfitt með að mæta þörfum barnanna og börnin eiga á hættu að missa forsjá foreldra sinna,“ eins og segir í fréttinni. Þar kemur fram að eitt af hverjum tuttugu börnum á Filippseyjum hafi verið yfirgefið, sé munaðarlaust eða vanrækt.

SOS á Íslandi hefur haft nokkra aðkomu að útfærslu verkefnisins, meðal annars umfang þess og staðsetningar í samráði við heimamenn. Þeir sjá þó um aðaláherslur og útfærslu þess. „Með formlegu upphafi verkefnisins á mánudaginn hófst ferli ráðninga á starfsfólki, uppsetning skrifstofu og önnur skipulagning en skjólstæðingar hafa þegar verið valdir eftir mati fagfólks á svæðinu,“ segir í fréttinni.

SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna nú þrjú fjölskyldueflingarverkefni en hin eru í Eþíópíu og Perú.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum