Hoppa yfir valmynd
12.04. 2019 Utanríkisráðuneytið

Hæsta framlagið þriðja árið í röð frá Íslandi ​– óháð höfðatölu!

Stjórn landsnefndar UN Women sem var endurkjörin á aðalfundinum í gærkvöldi. Ljósmynd: UN Women. - mynd

Framlag landsnefndar UN Women á Íslandi til alþjóðlegra verkefna nam á síðasta ári 107 milljónum króna og hækkaði um þrettán milljónir milli ára. Þriðja árið í röð er framlag Íslands hæst allra framlaga frá þrettán landsnefndum UN Women víðs vegar um heiminn – óháð höfðatölu! Þetta kom fram á aðalfundi UN Women á Íslandi sem haldinn var í gærkvöldi.

Arna Grímsdóttir stjórnarformaður UN Women flutti stutta tölu á fundinum um helstu verkefni og árangur í starfi samtakanna á síðasta ári. Ársskýrsla samtakanna var lögð fram ásamt ársreikningi.

Engar breytingar urðu á stjórn landsnefndarinnar og því sitja eftirfarandi meðlimir áfram í stjórn: Arna Grímsdóttir, formaður, Fanney Karlsdóttir, varaformaður, Kristín Ögmundsdóttir, gjaldkeri auk þeirra sitja í stjórn Bergur Ebbi Benediktsson, Magnús Orri Schram, Ólafur Stefánsson, Soffía Sigurgeirsdóttir, Örn Úlfar Sævarsson og Þórey Vilhjálmsdóttir. Stjórnin er annað árið í röð skipuð til jafns konum og körlum, fyrst allra landsnefnda UN Women.

Mánaðarlegir styrktaraðilar samtakanna á Íslandi eru rúmlega 7.300.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum