Hoppa yfir valmynd
24.04. 2019 Utanríkisráðuneytið

Skýrsla um heimsmarkmiðin í samráðsgátt stjórnvalda

Skýrslan fjallar um innleiðingu íslenskra stjórnvalda á heimsmarkmiðunum á innlendum og erlendum vettvangi. Ljósmynd frá Úganda: gunnisal - mynd

Skýrsla um stöðu Íslands gagnvart heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun verður afhent fulltrúum Sameinuðu þjóðanna í júlí í sumar sem hluti af landsrýni Íslands á heimsmarkmiðunum. Skýrslan er skrifuð af verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmiðin og hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Endanleg útgáfa hennar tekur mið af athugasemdum sem berast gegnum samráðsgáttina.

Skýrslan byggir á grunni stöðuskýrslu verkefnastjórnarinnar sem kom út á síðasta ári. Í skýrslunni er fjallað um innleiðingu íslenskra stjórnvalda á heimsmarkmiðunum á innlendum og erlendum vettvangi. Einn kafli er um hvert heimsmarkmið og dæmi um innleiðingu markmiða. Í lokin er fjallað um næstu skref í innleiðingunni. Skýrslunni fylgir tölfræðiviðauki með mælingum sem tekinn hefur verið saman af fulltrúum Hagstofu Íslands.

Í skýrslunni er fjallað um mikilvægi samráðs og samstarfs um innleiðingu heimsmarkmiðanna. „Heimsmarkmiðin eru víðfeðm og ná yfir flest svið stjórnsýslunnar, bæði á ríkis- og sveitarstjórnarstigi. Jafnframt er innleiðing markmiðanna ekki einungis á hendi stjórnvalda heldur mun þurfa samhent átak margra hagsmunaaðila til þess að þau megi verða að veruleika,“ segir í kynningu á samráðsgáttinni. Þar kemur ennfremur fram að í skýrslunni megi sjá að þótt Ísland standi vel af vígi gagnvart mörgum heimsmarkmiðanna séu ýmsar áskoranir sem kalli á skipulagða og samhæfða vinnu innanlands og alþjóðlega.

Skýrslan verður í samráðsgáttinni til 8. maí næstkomandi.

Upplýsingagátt opnuð í maí

Því er við að bæta að á vegum verkefnastjórnarinnar verður í næsta mánuði opnuð sérstök upplýsingagátt um heimsmarkmiðin. Eins og áður hefur verið greint frá hafa tveir af hverjum þremur á Íslandi heyrt um heimsmarkmiðin, samkvæmt nýlegri skoðanakönnun. Vitund almennings um markmiðin hefur aukist jafnt og þétt á síðustu misserum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum