Hoppa yfir valmynd
09.07. 2019 Utanríkisráðuneytið

Marel og Thoregs hljóta styrki úr samstarfssjóði við atvinnulífið

Tvö verkefni sem byggja á íslensku hugviti og verkþekkingu hafa fengið styrk úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Utanríkisráðuneytið kynnti á síðasta ári nýjan samstarfssjóð við atvinnulífið um heimsmarkmiðin sem ætlaður er samstarfsverkefnum fyrirtækja. Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu, með það að markmiði að stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum hagvexti í fátækum ríkjum. Þetta eru fyrstu styrkirnir sem veittir eru úr sjóðnum.

Bæði verkefnin styðja við heimsmarkmið nr. 8 um mannsæmandi atvinnutækifæri og sjálfbæran hagvöxt, ásamt því að hafa jákvæð áhrif á fjölmörg önnur heimsmarkmið.

Styrkþegar eru fyrirtækin Marel og Thoregs.

Marel hlaut rúmlega sjö milljóna króna styrk fyrir verkefni sem snýst um að efla mannauð í víetnömskum fiskvinnslum í meðhöndlun og vinnslu á tilteknum fiskafurðum með það að markmiði að bæta gæði og auka söluverðmæti afurða. Verkefnið kemur til með að hafa bein áhrif á uppbyggingu atvinnumöguleika og stuðla að sjálfbærum hagvexti í Víetnam.

Thoregs slf. hlaut fimm milljóna króna styrk vegna verkefnis sem unnið er í samstarfi íslenskra og indverskra aðila. Markmið verkefnisins er tækniyfirfærsla í mjólkur- og matvælavinnslu, með sérstakri áherslu á próteinríkar vörur. Byggðir verða upp klasar sjálfstæðra framleiðslueininga á Indlandi sem starfa á staðbundinn og sjálfbæran hátt. 

Alls bárust níu umsóknir í sjóðinn.

Upplýsingar um samstarf við atvinnulífið á sviði þróunarsamvinnu

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum