Hoppa yfir valmynd
11.07. 2019 Utanríkisráðuneytið

Sjö milljónir íbúa Suður-Súdan við hungurmörk

Flóttfólk frá Suður-Súdan nýkomið tl Úganda. Ljósmynd: gunnisal - mynd

Alvarlegur matarskortur hrjáir tæplega sjö milljónir íbúa Suður-Súdan, eða 61% þjóðarinnar, fleiri en nokkru sinni fyrr í sögu yngstu þjóðarinnar í heiminum. Í vikunni voru átta ár liðin frá sjálfstæði Suður-Súdan en nánast allan þann tíma hefur verið ófriður í landinu. Rúmlega 2,3 milljónir íbúa hafa flúið yfir landmæri til grannþjóða og hafast þar við sem flóttamenn. Innan lands eru 1,9 milljónir íbúa á vergangi.

Að mati hjálparsamtakanna Save the Children hefur íbúum á barmi hungursneyðar fjölgað um eina milljón frá undirritun friðarsamninga í september á síðasta ári. Þrátt fyrir þá hafa byssurnar ekki þagnað og þúsundir fjölskyldna misst eigur sínar og lífsviðurværi vegna átakanna.

Salva Kir, forseti Suður-Súdan, ávarpaði þjóð sína á þjóðhátíðardaginn og baðst afsökunar á mistökum ríkisstjórnarinnar, meðal annars þeim að hafa ekki tekist að greiða ríkisstarfsmönnum laun vegna efnahagskreppunnar í landinu. Kir hefur verið forseti frá upphafi sjálfstæðis landsins 2011 og sama ár sakaði hann varaforsetann, Riek Marchar, um tilraun til valdaráns.

Í þessum heimshluta er matvælaskortur útbreiddur en að mati Save the Children hefur Suður-Súdan þá sérstöðu að matvælaskorturinn er fyrst og fremst til kominn vegna átakanna en ekki þurrka eins og í Eþíópíu, Kenya og Sómalíu.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) telur fjárþörfina vegna flóttafólks frá Suður-Súdan vera 1,4 milljarða dala en aðeins hefur tekist að afla fimmtungs þess fjár. Í norðurhluta Úganda eru um 1,3 milljónir flóttamanna, flestir frá Suður-Súdan. Þorri þeirra eru konur og börn. Í desember á síðasta ári var skrifað undir samning við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um uppsetningu sólardrifinna vatnsveitna fyrir heilsugæslustöðvar og skóla á einu svæði flóttamanna. Um er að ræða nýmæli því að verkefnið samþættir aðstoð við flóttafólk og heimafólk. Þótt alþjóðasamfélagið leggi áherslu á samþættingu þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar eru þess háttar verkefni fátíð. Eftir eitt ár verður metið hvernig til hefur tekist og hvort halda eigi stuðningi áfram.

Ragnheiður Kolsöe sérfræðingur á þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytis hefur dvalið langdvölum í Suður-Súdan og sagði hlustendum Rásar 2 í vikunni af landi og þjóð. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum