Hoppa yfir valmynd
15.07. 2019 Utanríkisráðuneytið

Ungmenni í forgrunni á fundi um heimsmarkmiðin

Kristbjörg Mekkín Helgadóttir og Sigurður Einarsson Mäntylä flytja ávörp á ráðherrafundi um heimsmarkmiðin á morgun. - mynd

Ísland kynnir á morgun stöðu innleiðingar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun á árlegum ráðherrafundi í New York. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur þá ávarp fyrir Íslands hönd, en auk þess ávarpa tveir fulltrúar úr ungmennaráði heimsmarkmiðanna fundinn, þau Kristbjörg Mekkín Helgadóttir og Sigurður Einarsson Mäntylä.

„Svo lengi sem það er einhver tilbúinn að hlusta af alvöru tel ég að rödd okkar geti alltaf haft áhrif,“ segir Kristbjörg. „Það er samt svo mikilvægt að halda áfram að nýta rödd sína þó manni finnist maður á tímum vera að kalla inn í tómið. Við vonumst til þess að með þessu erindi okkar munum við koma röddum ungmenna á Íslandi eins vel til skila og við getum, það er svo bara að krossa putta að einhver sé tilbúinn að hlusta.“

Sigurður tekur í sama streng. „Af hverju ættum við ungmennin ekki að fá að taka þátt í þeim ákvörðunum sem teknar eru í dag og munu fyrst og fremst hafa áhrif á okkar framtíð?“ spyr hann. „Valdhafar þurfa að eiga samráð við öll ungmenni, líka þau sem hafa ekkert endilega áhuga á stjórnmálum og loftslagsbreytingum því aðeins þá getum við tryggt sanna samvinnu.“

Tveir hliðarviðburðir um ungmenni

Ísland skipuleggur þar að auki tvo hliðarviðburði sem fara fram á morgun og fjalla þeir báðir um ungmenni. Sá fyrri er skipulagður í samstarfi við Malaví, samstarfsland Íslands í þróunarsamvinnu, og fjallar um menntun og atvinnuþátttöku ungs fólks í Afríku. Sá seinni er unninn í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina, þar sem Ísland gegnir nú formennsku, og fjallar um ungmenni, loftslagsaðgerðir og lýðræði.

Í dag er alþjóðadagur kunnáttu ungmenna, en tilgangur hans er meðal annars að vekja athygli á því að ungmenni á aldrinum 15 til 24 ára eru þrisvar sinnum líklegri til þess að vera atvinnulaus en þau sem eldri eru og þá er þessi vaxandi hópur einnig ólíklegri til þess að finna vinnu við hæfi að loknu námi. Þátttaka ungmenna er nauðsynleg ef við ætlum að ná heimsmarkmiðunum og því nauðsynlegt að tryggja þeim gott aðgengi að menntun og atvinnutækifærum við hæfi.

Hægt verður að fylgjast með fulltrúum ungmennaráðsins á Instagram síðu UngRÚV.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
8. Góð atvinna og hagvöxtur
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum