Hoppa yfir valmynd
17.07. 2019 Utanríkisráðuneytið

Ísland og Malaví stóðu að sameiginlegri málstofu um ungmenni

Frá fundinum í gær um málefni ungmenna. Ljósmyndir: Cia Pak - mynd

Ísland og Malaví stóðu að sameiginlegri málstofu um ungmenni, menntun og atvinnutækifæri á árlegum ráðherrafundi um heimsmarkmiðin í Sameinuðu þjóðunum í New York í gær. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði málstofuna og lagði meðal annars áherslu á mikilvægi þess að öll börn hefðu aðgengi að viðeigandi menntun.

Aðrir sem fluttu ávörp voru Susanna Moorehead, formaður OECD/DAC, Judith Msusa, deildarstjóri í málefnum ungmenna í ungmenna,- íþrótta-, og menningarmálaráðuneyti Malaví, Neven Mimica, framkvæmdastjóri ESB á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, og Gilbert Happy Lwetutte, Ungmennafulltrúi Úganda hjá Sameinuðu þjóðunum. Robert Jenkins, forstjóri menntasviðs UNICEF, stýrði fundinum.

Um 1,8 milljarðar einstaklinga í heiminum eru á aldrinum 15-29 ára. Þar af búa um 87 prósent í þróunarríkjum, flest í Suður-Asíu og Afríku. Með réttri menntun, færni og valdeflingu kemur þetta unga fólk til með að umbreyta samfélögum sínum og hagkerfum. En sívaxandi heimshagkerfi krefst sérhæfðari hæfni á tímum þegar mörg menntakerfi eiga undir högg að sækja. Þá var einnig vakin athygli á þeirri staðreynd að þótt svo að ungmenni hljóti menntun séu atvinnutækifæri af skornum skammti í mörgum þróunarríkjum. Tíu af sautján heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun fjalla beint um ungmenni og eflingu þeirra, en á málstofunni var þeirri spurningu meðal annars velt upp hvernig tryggja megi þátttöku og tækifæri ungs fólks í þróunarríkjum við innleiðingu markmiðanna.

Á málstofunni var einnig sýnt myndband með viðtölum við ungmenni í Malaví sem hlotið höfðu sérhæfða menntun sem nýtist þeim í starfi.

Viðburðurinn í heild

 

  • $alt
  • $alt
  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
4. Menntun fyrir öll
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum