Hoppa yfir valmynd
20.09. 2019 Utanríkisráðuneytið

Barnadauði helmingi minni en í upphafi aldar

Í nýrri skýrslu um barnadauða í heiminum kemur fram að fleiri börn og konur lifa af núna en nokkru sinni fyrr. Þar kemur fram að frá árinu 2000 hafi barnadauði dregist saman um næstum helming og mæðradauði um þriðjung. Bætt aðgengi að heilbrigðisþjónustu er meginskýringin á þessum árangri. En þrátt fyrir miklar framfarir á þessu sviði segir tölfræðin að eitt barn eða ein móðir láti lífið á ellefu sekúndna fresti.

Talið er að 6,2 milljónir barna undir 15 ára aldri hafi látist í fyrra og ríflega 290 þúsund konur hafi látist á meðgöngu eða vegna vandkvæða tengdum fæðingu árið 2017. Af þeim 6,2 milljónum barna sem létust á síðasta ári dóu 5,3 milljónir á fyrstu fimm árum ævinnar, þar af helmingur á fyrsta mánuðinum.

Í skýrslunni - sem gefin er út af UNICEF, Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, Alþjóðabankanum og Sameinuðu þjóðunum - segir að konur og nýfædd börn séu eðlilega viðkvæmari fyrir hvers kyns vandkvæðum í og strax eftir fæðingu. „Um allan heim er fæðing barns hamingjustund. Engu að síður, á ellefu sekúndna fresti, breytist fæðing í fjölskylduharmleik,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF. „Hæfar hendur til að hjálpa móður og barni í fæðingu, hreint vatn, fullnægjandi næring, lyf og bólusetningar geta skilið milli lífs og dauða. Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma á heilbrigðiskerfi fyrir alla til að bjarga þessum dýrmætu lífum.“

Skýrslan sýnir einnig mikinn mun eftir heimshlutum. Í löndum sunnan Sahara í Afríku eru lífslíkur miklu minni en annars staðar. Mæðradauði er fimmtíu sinnum meiri hjá konum í þeim heimshluta og börn þeirra eru tíu sinnum líklegri til að látast á fyrsta mánuði ævi sinnar en í efnameiri samfélögum. Á síðasta ári lést eitt af hverju þrettán barni í sunnanverðri Afríku fyrir fimm ára afmælisdaginn. Það er fimmtán sinnum hærri dánartíðni en í Evrópu þar sem eitt af hverjum 196 börnum láta lífið yngri en fimm ára.

Íslendingar hafa í tvíhliða þróunarsamvinnu í Malaví lagt mikla áherslu á bætta heilbrigðisþjónustu fyrir mæður og börn. Ný fæðingardeild ásamt miðstöð ungbarnaeftirlits var tekin í notkun í upphafi árs í höfuðstað Mongochi héraðs og margar minni fæðingardeildir hafa verið reistar í sveitum á síðustu árum. Malaví er eitt þeirra landa í heiminum sem hefur náð mestum árangri í lækkun barna- og mæðradauða frá aldamótum.

Nánar á vef UNICEF

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
6. Hreint vatn og hreint

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum