Hoppa yfir valmynd
11.10. 2019 Utanríkisráðuneytið

Rauði krossinn vinnur gegn blæðingaskömm í Malaví

Ljósmynd: Rauði krossinn. - mynd

Rauði krossinn hefur um árabil unnið með stúlkum sem búa við sárafátækt á dreifbýlum svæðum í Malaví. Í frétt á vef samtakanna segir að mikil áhersla sé lögð á hreinlæti í tengslum við blæðingar og heilbrigði kvenna ásamt því að vinna gegn blæðingaskömm, sem hamli stúlkum á marga vegu og brjóti meðal annars upp skólagöngu.

"Aðgengi að dömubindum er mjög takmarkað á fjölda dreifbýlla svæða í landinu og ótalmargar stúlkur missa viku úr skóla í hverjum mánuði," segir í fréttinni. Fram kemur að í skólum séu salernisaðstæður oft ófullnægjandi og að stúlkur verði fyrir aðkasti ef aðrir verða þess varir að þær eru á blæðingum. "Ekki góðar aðstæður til að fara á blæðingar án dömubinda!"

"Við höfum opnað þetta mikilvæga samtal við íbúa á verkefnasvæðum okkar og vinnum nú með hópum unglingsstúlkna að málefninu. Einn þáttur þess felst í því að kenna þeim að sauma sér margnota dömubindi," segir í frétt Rauða krossins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll
6. Hreint vatn og hreint
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum