Hoppa yfir valmynd
19.11. 2019 Utanríkisráðuneytið

Klósett er munaður þeirra efnameiri í heiminum

Eitt af mörgum almenningssalernum sem reist hafa verið í Buikwe, Úganda, fyrir íslenskt þróunarfé. - mynd

Hreint neysluvatn, viðunandi salernisaðstaða og hreinlæti eru samofnir þættir í verkefnum sem unnin eru fyrir ísenskt þróunarfé í samstarfslöndum Íslendinga, Malaví og Úganda. Í Mósambík hafa Íslendingar verið í samstarfi við UNICEF um stórt verkefni á þessu sviði í Zimbezíu fylki og unnið er að öðru stóru verkefni í vatns- og salernismálum með UNICEF í Tombo, Síerra Leóne. Í dag er alþjóðlegi klósettdagurinn, World Toilet Day, og Sameinuðu þjóðirnar segja skýrt og greinilega: aðgangur að salerni getur bjargað hundruð milljóna mannlífa ár hvert.

Upplýsingaveita Sameinuðu þjóðanna (UNRIC) segir að á alþjóðlega salernisdeginum 19. nóvember sé ástæða til að minna á vanda sem margir hafi tilhneigingu til að leiða hjá sér. Í dag lifi 4,2 milljarðar manna án þess að hafa aðgang að lágmarks öruggri salernisaðstöðu. Af þeim þurfi 673 milljónir að ganga örna sinna undir beru lofti og þrjár milljónir njóti ekki aðstöðu til að þvo sér um hendur.

Sjötta heimsmarkmiðið felst í því að tryggja aðgengi að og sjálfbæra nýtingu allra á hreinu vatni og salernisaðstöðu. UNRIC segir örugg hreinlætisaðstaða þýði að hver og einn þurfi ekki að deila salernis- og hreinlætisaðstöðu með öðrum heimilum og tryggt sé að fólk komist ekki í snertingu við saur. Í fréttinni segir einnig að ófullnægjandi salernisaðstaða hafi í för með sér að sjúkdómar berast úr óunnum mannlegum úrgangi í vatnsból og inn í fæðukeðjuna og þar með til milljarða manna. Talið sé að tveir milljarðar manna á heimsvísu verði að sætta sig við drykkjarvatn sem mengað er mannasauri vegna skorts á salernum og hreinlæti.

„Salernisskortur er talinn valda 432 þúsund dauðsföllum úr niðurgangspestum á ári og hann er stór orsakavaldur í útbreiðslu innvortis orma, egypsks augnkvefs og blóðögðuveiki. Talið er að 297 þúsund börn undir fimm ára aldri látist af völdum niðurgangspesta sem rætur eiga að rekja til óheilnæms drykkjarvatns og skorts á salernis- og hreinlætisaðstöðu. Fátækt fólk og aðrir sem höllum fæti standa, eru mun líklegri til að fylla þann flokk sem ekki hefur aðgang að fullnægjandi salernis- og hreinlætisaðstöðu,“ segir í fréttinni.

Myndbandið er tekið í Buikwe, samstarfshéraði Íslendinga í Úganda.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

6. Hreint vatn og hreint

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum