Hoppa yfir valmynd
15.01. 2020 Utanríkisráðuneytið

Konur og atvinnulíf: Ísland með fullt hús stiga

Ísland er í hópi átta ríkja sem fá hæstu einkunn, 100 stig, í nýrri skýrslu Alþjóðabankans um konur og atvinnulíf. Skýrslan sýnir að þrátt fyrir umbætur á síðustu árum hafa konur enn að jafnaði aðeins þrjá fjórðu hluta lagalegrar stöðu á við karla í heiminum þegar kemur að vinnumarkaði og viðskiptum.

Í skýrslunni – Women, Business and the Law 2020 – eru tekin til skoðunar 190 hagkerfi. Rýnt er í lagaumhverfi og regluverk sem tengist vinnumarkaðsrétti kvenna. Niðurstaðan er sú að konum er enn mismunað á margvíslegan hátt og aðeins átta þjóðir fá fullt hús stiga.

Í skýrslunni eru sérstaklega teknar til skoðunar umbætur á lagaumhverfi og regluverki á átta sviðum á síðustu rúmum tveimur árum í þágu kvenna, frá júní 2017 til september 2019. Í ljós kemur að í 40 löndum hafa tekið gildi á 62 umbætur sem koma til með „að styðja við bakið á konum – helmingi mannkyns – að nýta hæfileika sína og stuðla að hagvexti og þróun,“ eins og segir í frétt frá Alþjóðabankanum í tilefni skýrslunnar.

Skýrslan sýnir engu að síður að staða kvenna er ákaflega misjöfn og meðal sumra þjóða hafa konur aðeins lítið brot af lagalegum rétti karla. Fram kemur í skýrslunni að flestar lagabætur hafa verið gerðar sem tengjast réttindum foreldra. Sextán þjóðir samþykktu að mati Alþjóðabankans jákvæðar breytingar á því sviði, meðal annars um fæðingarorlof og bann við uppsögnum barnshafandi kvenna. Þá hafa átta þjóðir í fyrsta sinn samþykkt lög um heimilisofbeldi, meðal sjö þjóða hafa ný lög verið sett gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum og tólf þjóðir hafa fært í lög umbætur í launamálum.

David Malpass forseti Alþjóðabankans telur bæði rétt og jákvætt frá efnahagslegu sjónarmiði að bæta lagaleg réttindi kvenna. Með auknu frelsi og vinnu utan heimilis taki konur þátt á vinnumarkaði og styrki hagkerfi þjóða sinna.

Auk Íslands fengu sjö aðrar þjóðir fullt hús í skýrslu Alþjóðabankans, Kanada, Belgía, Danmörk, Frakkland, Lettland, Lúxemborg og Svíþjóð.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum