Hoppa yfir valmynd
20.01. 2020 Utanríkisráðuneytið

Fátækustu stúlkurnar í heiminum fá ekki formlega menntun

Ljósmynd: gunnisal - mynd

Þriðjungur stúlkna á unglingsaldri frá fátækustu heimilunum hefur aldrei setið á skólabekk. Skólaganga tengist með mjög ójöfnum hætti efnameiri heimilum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) sem gefin er út fyrir fund Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss.

Fulltrúar UNICEF hvöttu í morgun þjóðarleiðtoga til þess að bregðast við „skammarlegu“ misræmi í opinberum framlögum til menntamála. Í skýrslunni segir að með því að útiloka fátækustu börnin frá menntun sé fátækt viðhaldið. UNICEF segir þessum börnum mismunað með margvíslegum hætti, vegna kyns, fötlunar, þjóðabrota og lélegra innviða. UNICEF bætir við að börn sem komast í skóla eigi reyndar á hættu að lenda í alltof fjölmennum bekkjum með illa menntuðum kennurum, skorti á námsgögnum og lélegum skólabyggingum.

Vísað er til skýrslu Alþjóðabankans sem sýndi að rúmlega helmingur allra barna í lágtekju- og millitekjuríkjum geti ekki lesið eða skilið einfalda frásögn við lok grunnskólanáms.

Oxfam samtökin birtu einnig skýrslu í morgun um efnahagslegan ójöfnuð í heiminum og dró upp þá mynd að fátækar konur og stúlkur séu verst staddar. Þær vinni daglega 12,5 milljarða ógreiddra vinnustunda, virði 11 þúsund milljarða í bandarískum dölum. Oxfam bendir til dæmis á að 22 ríkustu menn heims eigi meiri auð en allar afrískar konur sem eru 326 milljónir talsins.

Þá segir Oxfam að milljarðamæringar séu tvöfalt fleiri en fyrir áratug en auður fátækasta fólksins hafi rýrnað.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum