Hoppa yfir valmynd
21.01. 2020 Utanríkisráðuneytið

Hvetur Ísland til að leiða áfram jafnréttisbaráttuna

„Ísland hefur sannarlega verið í forystuhlutverki á sviði jafnréttisbaráttu og ég hvet ykkur til að halda áfram að vera leiðandi á því sviði, öðrum framlagsríkjum til eftirbreytni,“ sagði Susanna Moorehead formaður þróunarsamvinnunefndar OECD, DAC. Hún er stödd hér á landi og flutti erindi á málþingi í Reykjavík í gærkvöld um framtíð þróunarsamvinnu.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra kom líka inn á jafnréttismálin í ávarpsorðum sínum. „Jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna styður og viðheldur efnahagslegri og félagslegri þróun. Því miður beinist stór hluti opinberra framlaga til þróunarmála í heiminum alls ekki að jafnrétti kynjanna og þeirri þróun þarf að snúa við,“ sagði ráðherra. Hann nefndi enn fremur að jafnrétti kynjanna, umhverfismál og mannréttindi hafi fengið enn meiri þunga en áður í nýlegri fimm ára stefnu Íslands í þróunarsamvinnu.

„Við höfum líka aukið áherslu okkar á þátttöku einkageirans í þróunarsamvinnu og svarað kalli framlagsríkja og þróunarríkja um að fjármögnun heimsmarkmiðanna gerist ekki án þátttöku einkageirans,“ sagði Guðlaugur Þór.

Susanna Moorehead hefur mikla reynslu og þekkingu á þróunarmálum. Auk þess að vera sendiherra Bretlands í Eþíópíu og fastafulltrúi Breta hjá Afríkubandalaginu um þriggja ára skeið, var hún fyrr á starfsferlinum deildarstjóri í þróunarsamvinnuráðuneyti Breta, DfID og sat í stjórn Alþjóðabankans fyrir hönd Bretlands. Moorehead hefur starfað sem formaður DAC í rúmt eitt ár en Ísland gerðist aðili að nefndinni árið 2013. Hlutverk nefndarinnar er að efla samhæfingu og nýsköpun til að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna í þróunarríkjum, að auka fjármögnun og setja alþjóðlega staðla fyrir starfshætti í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.

Í máli hennar kom fram að þróunarsamvinna standi frammi fyrir fimm megináskorunum: nýjum leiðum til fjármögnunar, áhrifum loftslagsbreytinga, kynjajafnrétti, vinnu með nýjum framlagsríkjum og vönduðum vinnubrögðum til að tryggja skilvirka þróunarsamvinnu.

Að loknu framsöguerindi Susanna Moorehead fóru fram líflegar pallborðsumræður en ásamt henni sátu í pallborðinu þau Engilbert Guðmundsson, ráðgjafi utanríkisráðuneytisins í þróunarmálum og fyrrverandi framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, Khwimani Isabel Mwasinga, nemandi við Jafnréttisskóla GRÓ - þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu og Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS barnaþorpanna á Íslandi.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum