Hoppa yfir valmynd
28.01. 2020 Utanríkisráðuneytið

Íslendingar stuðla að atvinnuþáttöku ungs fólks í Sómalíu og Sómalílandi

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa með styrk frá utanríkisráðuneytinu staðið að verkefni í Sómalíu og Sómalílandi á síðustu misserum í þeim tilgangi að efla atvinnuþátttöku ungs fólks. Fyrstu ungmennin luku á dögunum þjálfun á fyrsta ári í verkefninu og árangurinn er góður.

„Þetta eru 116 ungmenni sem tóku þátt í þjálfuninni og þau streyma núna út á atvinnumarkaðinn, 59 stúlkur og 57 piltar,“ segir Hans Steinar Bjarnason upplýsingafulltrúi SOS barnþorpanna. „Þátttakendur sækja bæði um störf á almennum vinnumarkaði að þjálfun lokinni og hjá samstarfsfyrirtækjum sem veita lærlingsstöður. Það gengur vel að fá fyrirtæki til samstarfs, bæði opinber fyrirtæki og einkafyrirtæki, til dæmis hafa 40 fyrirtæki bæst við síðan við komum að verkefninu fyrir réttu ári,“ segir hann.

Verkefnið kallast The Next Economy og SOS á Íslandi og utanríkisiráðuneytið fjármagna annan hluta þess sem hófst 1. janúar í fyrra og lýkur í árslok 2021. Þjálfunin fer fram í höfuðborgunum Hargeisa í Sómalílandi og Mogadishu í Sómalíu.

„Þrátt fyrir uppgang í efnahag margra Afríkuríkja undanfarin ár virðast atvinnutækifærin ekki rata í hendur stórs hluta 420 milljóna ungmenna álfunnar. Það hefur meðal annars haft þær afleiðingar að ungmenni leiðast út á glæpabraut og tilgangur SOS með verkefninu er að leggja sitt af mörkum til að bæta þar úr,“ segir Hans Steinar.

Heildarkostnaður við annan hluta verkefnisins sem fjármagnaður er af Íslendingum nemur rúmlega 64 milljónum króna. Heildarframlag utanríkisráðuneytisins er rúmlega 51 milljón króna og heildarframlag SOS Barnaþorpanna á Íslandi tæpar 13 milljónir.

Nánar á vef SOS

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur
9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum