Hoppa yfir valmynd
03.04. 2020 Utanríkisráðuneytið

Ellefu ríki hafa þegar fallist á vopnhlé

Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Ljósmynd: Evan Schneider. - mynd

Ellefu ríki sem eiga aðild að stríðsátökum hafa fallist á að leggja niður vopn samkvæmt tilmælum Sameinuðu þjóðanna. Þjóðirnar sem um ræðir eru Filipsseyjar, Jemen, Kamerún, Kólombía, Líbía, Mjanmar, Mið-Afríkulýðveldið, Suður-Súdan, Súdan, Sýrland og Úkraína. Sjötíu ríki hafa lýst yfir stuðningi við vopnahlé á heimsvísu.

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ítrekaði í dag hvatningu sína um að „vopnaðar fylkingar” um allan heim leggi niður vopn til að greiða fyrir baráttunni gegn COVID-19. Hann birti ákall sitt um alheimsvopnahlé 23. mars og sagði í dag að nú þegar hafi verið brugðist jákvætt við hvatningu hans. Hann hefur lýst yfir því að COVID-19 sé mesta þolraun sem heimurinn hafi staðið frammi fyrir frá því Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar fyrir 75 árum.

„Það er breitt bil á milli orða og athafna,” sagði Guterres. „Það getur verið langt á milli þess að tala um frið og að það skili sér í betra lífi fyrir fólkið sem á í hlut.” Hann sagði að með því að stöðva átök „væri hægt að skapa aðstæður til þess að koma lífsnauðsynlegri aðstoð til skila.“ Guterres kvaðst óttast að COVID-19 gæti orðið olía á eld pólitískrar spennu og ofbeldis.

„Okkur ber að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hlúa að friði og þeirri einingu sem er heiminum nauðsyn til að berjast gegn COVID-19,“ sagði António Guterres.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum