Hoppa yfir valmynd
15.04. 2020 Utanríkisráðuneytið

Börn berskjölduð gagnvart skuggahliðum netsins í heimsfaraldri COVID-19

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Milljónir barna um allan heim eru í aukinni hættu á að verða fyrir netofbeldi nú þegar daglegt líf þeirra hefur í auknum mæli færst yfir í netheima vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Við þessu vara UNICEF og samstarfsstofnanir í tilkynningu í dag.

„Skjátími hefur aldrei í sögunni verið meiri en nú,“ segir Howard Taylor, forsvarsmaður alþjóðasamtaka um að binda enda á ofbeldi, Global Partnership to End Violence. „Skólalokanir og samkomubönn gera það að verkum að fjölskyldur treysta nú á tæknina og stafrænar lausnir til að halda börnum við efnið í námi, afþreyingu og til að halda sambandi við umheiminn. En börn skortir oft nauðsynlega kunnáttu, þekkingu og þroska til að varast hinar ýmsu hættur sem að þeim steðja í netheimum.“

Mikil tölvu- og netnotkun barna gerir þau eðlilega berskjölduð gagnvart þessum hættum. Ofbeldi, kynferðisleg misnotkun og einelti eru aðeins nokkrar af þessum hættum sem af netníðingum stafa. Þá óttast hópurinn að skortur á samskiptum milli fólks, augliti til auglits kunni að leiða til þess að pör og vinir taki aukna áhættu eins og með að senda myndefni sín á milli eða og að aukinn tími barna eftirlitslaus á netinu geri þau berskjölduð fyrir skaðlegu efni og neteinelti.

UNICEF hefur í samstarfi við margar alþjóðastofnanir gefið út leiðbeiningar og tilmæli þar sem stjórnvöld, fjarskiptafyrirtæki, skólastarfsmenn og foreldrar eru hvött til að vera á varðbergi, gera nauðsynlegar ráðstafanir og tryggja öryggi barna meðan á aðgerðum vegna COVID-19 stendur.

„Í skugga COVID-19 hefur líf milljóna barna skroppið saman og einskorðast nú við heimili þeirra og skjái. Við verðum að vísa þeim veginn í þessum nýja veruleika,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í tilkynningu. „Við hvetjum stjórnvöld og fyrirtæki til að taka höndum saman og tryggja öryggi barna og unglinga á netinu með auknum öryggisráðstöfunum og nýjum verkfærum sem hjálpa foreldrum og kennurum að mennta börnin í að nota netið á öruggan hátt.“

Bráðabirgðaaðgerðir sem lagðar eru til af hópnum má lesa í heild sinni hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum