Hoppa yfir valmynd
20.05. 2020 Utanríkisráðuneytið

Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir alþjóðlegri samstöðu við Afríkuríki

Ljósmynd frá Kamerún: WFP/Glory Ndaka - mynd

Milljónir íbúa Afríkuríkja gætu vegna COVID heimsfaraldursins lent í sárri fátækt, sagði í yfirlýsingu frá António Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í gær. Hann kallaði eftir alþjóðlegri samstöðu um stuðning við ríki álfunnar.

"Heimsfaraldurinn ógnar framförum í Afríku. Hættan er sú að hann auki á langvarandi misrétti og hungur, vannæringu og varnarleysi gagnvart sjúkdómum," sagði Guterres.

Hann tók jafnframt fram að hann óskaði Afríku til hamingju með skjót viðbrögð við heimsfaraldrinum. Útbreiðsla sjúkdómsins hefur enn sem komið er ekki verið í þeim mæli sem spár gerðu ráð fyrir og tölur um smit „lægri en óttast var,“ eins og Guterres orðaði það. Rúmlega 2500 hafa látist í álfunni af völdum COVID-19.

„Afríkuríki ættu einnig að fá skjótan, jafnan og hagkvæman aðgang að hvers konar bóluefni og meðferðum,“ sagði hann og bætti við að heimsfaraldurinn væri enn á byrjunarstigi í Afríku og gæti stigmagnast hratt.

Þá hvatti hann til alþjóðlegra aðgerða til að styrkja heilbrigðiskerfi í álfunni, viðhalda fæðubirgðum og forðast fjármálakreppur, styðja menntun, vernda störf og halda heimilum og fyrirtækjum á floti gegn tekjumissi.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum