Hoppa yfir valmynd
15.06. 2020 Utanríkisráðuneytið

Óttast aukinn barnadauða vegna áhrifa farsóttarinnar á heilbrigðisþjónustu

Ljósmynd: UNICEF/ Huwais - mynd

„Aukist vannæring meðal barna og dragist yfirstandandi truflanir á lífsnauðsynlegri heilbrigðis- og næringarþjónustu á langinn áætlum við að 51 þúsund börn undir fimm ára aldri gætu látið lífið fyrir árslok 2020,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) sem felur í sér svarta spá um grunnheilbrigðisþjónustu í Miðausturlöndum og Norður-Afríku.

 „Heimsfaraldur COVID-19 er að setja fordæmalaust álag á heilbrigðiskerfi á svæðinu. Grunnheilbrigðisþjónusta hefur dregist saman eða raskast verulega í fjölmörgum löndum,“ segja Ted Chaiban yfirmaður UNICEF í Miðausturlöndum og N-Afríku og Dr. Ahmed Al-Mandhari svæðisstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) í þessum heimshluta í yfirlýsingu sem birtist í morgun. Þeir segja að þrátt fyrir að ekki hafi greinst mörg tilfelli af COVID-19 í börnum á svæðinu sé augljóst mál að heimsfaraldurinn hafi veruleg bein áhrif á börn í þessum heimshluta.

Fyrir spár gerðu ráð fyrir að 133 þúsund börn undir fimm ára aldri létust á svæðinu á næstu sex mánuðum. Með þessari aukningu gætu dauðsföllin því orðið alls 184 þúsund og þýða gríðarlega afturför í þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni gegn barnadauða á svæðinu síðustu tvo áratugi.

UNICEF segir í frétt að nokkrir samverkandi þættir geti leitt til þessarar skelfilegu niðurstöðu, að mati Chaiban og Mandhari, þar á meðal mannekla, gríðarlegt álag á heilbrigðisstarfsmönnum og skortur á gögnum, tækjum og tólum. Lokanir, ferðatakmarkanir og efnahagshömlur dragi einnig úr aðgengi íbúa að heilsugæslu. Ótti við smit sem geri það að verkum að mæður og börn eigi á hættu að verða af mikilvægri þjónustu á borð við bólusetningar, meðhöndlun á sýkingum í nýburum og ýmsum barnasjúkdómum, meðgönguvernd, sængurleguþjónustu og næringaraðstoð.

„En við getum afstýrt þessari skelfilegu sviðsmynd og hjálpað tugþúsundum barna að fagna fimm ára afmæli sínu með ástvinum og fjölskyldu,“ segir í fréttinni þar sem birtur er aðgerðalisti um breytingar sem WHO og UNICEF kalla eftir:

  • Bólusetningar- og næringarverkefni verði örugglega komið á að fullu með tilheyrandi varúðarráðstöfunum gagnvart smithættu og viðeigandi sóttvörnum.
  • Forgangsraða og hafa milligöngu um aðgengi að grunnheilbrigðisþjónustu fyrir öll börn, sérstaklega þau sem verst standa og eru berskjölduð. Til þess þarf mannskap og hjálpargögn.
  • Útvega þarf neyðarteymum í það minnsta lágmarksbúnað til smitvarna, eins og hlífðarfatnað og hreinlætisvörur.
  • Fjárfesta þarf í skilvirkri opinberri upplýsingagjöf til samfélaganna til að auka traust á heilbrigðiskerfið og hvetja fjölskyldur til að leita sér aðstoðar ef eitthvað kemur upp á. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum