Hoppa yfir valmynd
16.07. 2020 Utanríkisráðuneytið

COVID-19: Ísland færir héraðsstjórn Buikwe búnað í baráttunni gegn sjúkdómnum

Tekið á móti búnaðinum á heilsugæslustöð í Buikwe.  - mynd

Heilsugæslustöðvar í samstarfshéraði Íslands í Úganda, Buikwe, hafa fengið í hendur margvíslegan búnað að gjöf frá Íslandi í baráttunni gegn útbreiðslu kórónaveirunnar. Í héraðinu hafa greinst 42 tilvik COVID-19 og samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum í Úganda er Buikwe meðal þeirra héraða í landinu öllu þar sem flestir hafa greinst með sjúkdóminn.

Jenefrances Kagay fulltrúi forseta Úganda í héraðinu lýsti yfir miklu þakklæti til ríkisstjórnar Íslands fyrir „þennan stuðning við að bjarga mannslífum í héraðinu“ og hún þakkaði einnig fyrir stuðning Íslands við þróunarverkefni í héraðinu á sviði menntunar, vatns- og hreinlætismála, og valdeflingar kvenna.

Búnaðurinn er að andvirði um 14 milljóna íslenskra króna og felur einkum í sér hlífðarbúnað fyrir heilbrigðisstarfsfólk, meðal annars grímur, hanska, svuntur og stígvél en einnig hitamæla, hreinsiefni og fleira. Mikill skortur hefur verið í Buikwe á slíkum sérhæfðum búnaði og hann dregur meðal annars úr ótta heilbrigðisstarfsfólks við umönnun þeirra sem hafa veikst af COVID-19, eins og Jeanfrances Kagay sagði í ávarpi þegar hún tók á móti gjöfinni frá fulltrúum íslenska sendiráðsins í Kampala.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum