Hoppa yfir valmynd
05.08. 2020 Utanríkisráðuneytið

Rauði krossinn: Neyðarsöfnun fyrir Beirút

Ljósmynd: Rauði krossinn. - mynd

Rauði krossinn á Íslandi tekur þátt í samræmdu átaki Rauða kross hreyfingarinnar vegna hamfarasprenginga í Beirút, höfuðborg Líbanon og hefur hafið neyðarsöfnun eftir sprengingarnar á hafnarsvæði borgarinnar í gær. Í frétt Rauða krossins á Íslandi segir að staðfest sé að yfir eitt hundrað séu látin og yfir fjögur þúsund særð en óttast sé að tölur um fjölda látinna og særðra hækki, því enn sé margra saknað.

„Talið er að allt að þrjú hundruð þúsund manns hafi misst heimili sín í sprengingunum og ljóst er að þörfin fyrir aðstoð er gríðarleg. Þá ber að hafa í huga að Líbanon er það ríki sem hýsir hæsta hlutfall flóttafólks í heimi miðað við höfðatölu. Um fjórðungur íbúa er flóttafólk og þar af er rúm 1,5 milljón manns frá Sýrlandi. Þessar hamfarir koma að auki ofan í COVID-19 faraldurinn og óttast er að sú ringulreið sem skapast hefur í kjölfar sprengingarinnar kunni að valda aukningu í smitum, m.a. vegna þess hve illa gengur að sinna persónulegu hreinlæti og viðhafa fjarlægðartakmörk," segir í fréttinni. 

Sprengingarnar ollu gríðarlegum skemmdum á höfninni og stóru svæði allt frá miðborg Beirút í úthverfi borgarinnar. Sprengingarnar samsvöruðu 4,5 stiga jarðskjálfta á Richter og var a.m.k. önnur sprengingin það öflug að hljóðbylgjan barst til Kýpur í 240 km fjarlægð frá Beirút. Miklar skemmdir eru á byggingum og innviðum og samgöngur í borginni eru erfiðar þar sem glerbrot og byggingarbrak teppa götur.

Rauði krossinn í Líbanon virkjaði strax neyðarkerfi sitt og er í framlínu aðgerða á vettvangi. Félagið vinnur í kappi við tímann við að bjarga mannslífum, en hefur ekki undan að flytja látna, særða og slasaða af vettvangi auk þess sem sjúkrahús eru yfirfull.

Rauði krossinn á Íslandi hefur unnið að því undanfarin ár að efla neyðarheilbrigðisþjónustu Rauða krossins í Líbanon með stuðningi utanríkisráðuneytisins. Sú þjónusta nýtist vel á stundum sem þessum og tryggir betri og samfelldari aðhlynningu, m.a. með rafrænu skráningarkerfi fyrir sjúklinga. Starfsfólk sjúkrabíla Rauða krossins eru að mestum hluta sjálfboðaliðar.

Hægt er að styrkja hjálparstarf Rauða krossins um 2900 kr. með því að senda SMS-ið HJALP í númerið 1900.

Einnig má leggja inn á reikning 0342 - 26 -12, kt. 530269-2649.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum