Hoppa yfir valmynd
19.08. 2020 Utanríkisráðuneytið

Mikil fjölgun árása á fólk í mannúðarstörfum – 125 létust í fyrra

Í dag, á alþjóðlega mannúðardaginn, heiðrar heimurinn alla þá fjölmörgu sem sinna mannúðarmálum og telja ekki eftir sér að leggja tíma sinn og krafta af mörkum til liðsinnis við þá sem þurfa á stuðningi að halda. Í dag á þetta ekki hvað síst við um þá sem bjóða fram aðstoð sína í yfirstandandi heimsfaraldri kórónaveirunnar.

Sameinuðu þjóðirnar samþykktu á allsherjarþinginu árið 2009 að helga sérstakan dag ár hvert ósérhlífnu framlagi þeirra sem starfa að mannúðarmálum en 19. ágúst árið 2003 var varpað sprengjum á byggingu Sameinuðu þjóðanna í Bagdad með þeim afleiðingum að 22 létu lífið. Frá þeim tíma hafa hartnær fimm þúsund einstaklingar við mannúðarstörf ýmist týnt lífi, verið særðir eða brottnumdir. Á síðustu tíu árum hefur orðið 117 prósent fjölgun árása miðað við áratuginn á undan.

Síðasta ár var það ofbeldisfyllsta í sögunni, þá var ráðist að starfsfólki í mannúðarstörfum í 483 árásum þar sem 125 létust, 234 særðust og 124 voru numdir á brott. Aukningin er 18 prósent milli ára.

Sameinuðu þjóðirnar vekja athygli á því að þeir fyrstu sem gefa sig fram í mannúðarstörf eru oft á tíðum sjálfir í nauð, flóttafólk, félagar í frjálsum félagasamtökum og heilbrigðisstarfsfólk á viðkomandi svæði. Þeir komi færandi hendi með mat, veiti skjól, heilbrigðisþjónustu, vernd og von, til annarra í átökum, á flótta, í hörmungum og veikindum. Þeir hætti oft lífi sínu til að bjarga lífi annarra.

Vefur alþjóðadagsins – World Humanitarian Day

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum