Hoppa yfir valmynd
20.08. 2020 Utanríkisráðuneytið

Styrkur til Aurora velgerðarsjóðs vegna leirkeraverkstæðis í Sierra Leone

Ljósmynd: Aurora velgerðarsjóður. - mynd

Aurora velgerðarsjóður hefur á síðustu misserum byggt upp ásamt samstarfsaðilum leirkeraverkstæði rétt fyrir utan Freetown, höfuðborg Síerra Leone, í þeim tilgangi að þjálfa ungt fólk, einkum konur, í framleiðslu leirmuna. Þar hefur einnig verið settur á laggirnar skóli þar sem nemendur læra að verða leirkerasmiðir. Utanríkisráðuneytið skrifaði á dögunum undir samning við sjóðinn um samfjármögnun til frekari uppbyggingar á verkstæðinu, Lettie Stuart Pottery (LSP).

Verkefnið kallast Handleiðsla og felur í sér fyrstu skrefin í sjálfbærum rekstri leirkeraverkstæðisins. „Með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu fær Aurora liðsinni tveggja frábærra leirkerasmiða, Guðbjörgu Káradóttur og Péter Korompai, sem koma til með að dvelja á verkstæðinu samanlagt í þrjá mánuði við handleiðslu og rannsóknir,“ segir Regína Bjarnadóttir framkvæmdastjóri sjóðsins. Hún segir að þau hafi bæði áður unnið fyrir Auroru, veitt mikilvægan stuðning við að koma verkstæðinu á laggirnar og aðstoðað við keramikskólann.

„Að gera LSP að sjálfbæru verkstæði til framtíðar, sem getur haldið áfram að þjálfa ungt fólk, einkum konur, í framleiðslu leirmuna er lóð á vogarskálina á móti gífurlegu atvinnuleysi sem er landlægt í Sierra Leone. Hráefni til framleiðslu og eftirspurn eru til staðar og svigrúm fyrir mun fleiri starfandi leirkerasmiði í landinu. Með því að styrkja stoðir LSP eykst fjölbreytni í iðnaði og handverki og tækifæri skapast fyrir ungt fólk að koma undir sig fótum og sjá sér farborða til framtíðar. Með þessu verkefni er komið inn á fjölmörg heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, einkum markmið 4, 8 og 9 um menntun fyrir alla, góða atvinnu og hagvöxt og nýsköpun og uppbyggingu,“ segir Regína.

Leirkeraverkstæðið er að sögn hennar mjög einstakt og ekki mörg verkstæði í Afríku sem státa af getu til hábrennslu og þekkingu heimamanna til að búa til góða keramikvöru. „Þetta verkefni er því ekki einungis atvinnuskapandi og áhugavert að því leyti heldur er einnig verið að ýta undir að varðveita handverk og þekkingu í landinu og taka hana á næsta stig. Vörur eru handunnar í Sierra Leone úr hráefni frá nærumhverfinu og eiga því mikið markaðstækifæri á heimsvísu núna þegar kröfur um sjálfbærni og uppruna handverks verða stöðugt háværari. Því er við að bæta að hægt er að kaupa vörur framleiddar á verkstæðinu á Íslandi. Hönnunin er íslensk en munirnir alfarið framleiddir í Sierra Leone.

Sierra Leone Adult Education Association (SLADEA) er samstarfsaðili Auroru í Sierra Leone og rekur verkstæðið.

Verkefnið er hluti af samstarfi ráðuneytisins við íslensk félagasamtök en auglýst var í byrjun árs 2020 eftir umsóknum um styrki vegna þróunarsamvinnuverkefna og var umsóknarfrestur var til 31. mars. Nánar má lesa um samstarfið á vef stjórnarráðsins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur
9. Nýsköpun og uppbygging
17. Samvinna um markmiðin
4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum