Hoppa yfir valmynd
21.08. 2020 Utanríkisráðuneytið

Auglýst eftir ráðgjöfum í alþjóðlegt þróunarsamstarf

Ljósmynd: gunnisal - mynd

Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir ráðgjöfum, jafnt fyrirtækjum sem einstaklingum, til að sinna verkefnum á sviði fiskimála, jafnréttismála, landgræðslu og sjálfbærrar orku í alþjóðlegu þróunarsamstarfi. Þessir málaflokkar eru áherslusvið í íslenskri þróunarsamvinnu og tæknileg aðstoð á þessum sviðum er hluti af þróunarframlagi Íslands.

Ekki er um skilgreind verkefni að ræða á þessu stigi heldur er um ráðgjafalista og mun umfang og eðli verkefna ráðast af eftirspurn frá samstarfsaðilum, svo sem alþjóðastofnunum. Ríkiskaup hefur umsjón með skráningu á ráðgjafalistana og nú eru fimm auglýsingar fyrir ráðgjafaskráningu aðgengilegar á 
http://utbodsvefur.is/.

Þau sérfræðisvið sem sérstaklega er óskað eftir, mótast af framboði og eftirspurn frá samstarfsaðilum. Einungis er óskað eftir sérfræðingum sem uppfylla skilyrði A og B ráðgjafa:

A: Ráðgjafi með háskólapróf í viðeigandi grein skv. sérfræðisviði og meira en 20 ára reynslu í faginu.
B: Ráðgjafi með háskólapróf í viðeigandi grein skv. sérfræðisviði og meira en 10 ára reynslu í faginu.

Verkefnin verða unnin samkvæmt skilgreindum beiðnum og verklýsingum frá samstarfsaðilum, svo sem verkefnisteymum Alþjóðabankans eða öðrum alþjóðlegum samstarfsstofnunum. Verk geta verið af öllum stærðargráðum en búist er við að algengt verði að verkefni verði á bilinu 50-200 tímar. Utanríkisráðuneytið heldur utan um skrá áhugasamra ráðgjafa og fyrirtækja og gerir staðlaðan samning um verkefni beint við viðkomandi fyrirtæki/einstakling.

Skráning á listann tryggir ekki að viðkomandi fyrirtæki/ráðgjafi fái verkefni.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka
8. Góð atvinna og hagvöxtur
5. Jafnrétti kynjanna
15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum