Hoppa yfir valmynd
07.09. 2020 Utanríkisráðuneytið

Óloft dregur sjö milljónir til dauða árlega

Ljósmynd frá Úganda: gunnisal - mynd

Níu af hverjum tíu íbúum jarðarinnar anda að sér ólofti, menguðu lofti, þeirri umhverfisvá sem ógnar mest heilsu fólks. Loftmengun á þátt í hjartasjúkdómum, heilablóðföllum, lungnakrabbameini og öðrum öndurfærasjúkdómum. Í dag, 7. september, er í fyrsta sinn sérstakur Alþjóðadagur hreins lofts í þágu bláa himinsins, eins og hann er nefndur af hálfu Sameinuðu þjóðanna (International Day of Clean Air for Blue Skies).

Sjö milljónir manna látast ár hvert af völdum loftmengunar, fleiri en samanlagður fjöldi íbúa Íslands og Danmerkur, eins og Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna (UNRIC) bendir á í frétt með fyrirsögninni: Ósýnilegi raðmorðinginn sem drepur 7 milljónir á ári.

Þema dagsins er „hreint loft fyrir alla.“

„Í dag 7. september höldum við í fyrsta skipti upp á Alþjóðlegan dag hreina loftsins. Við skulum taka saman höndum til að byggja betri framtíð með hreinu lofti fyrir alla,” segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi. „Nú þegar við byggjum upp að nýju andspænis skaðvænlegum afleiðingum COVID-19, ber okkur að veita loftmengun mun meiri athygli, en þar að auki eykur hún á þá hættu sem stafar af COVID-19, segir Guterres.

„Mengað andrúmsloft hefur skaðleg áhrif á loftslagið, fjölbreytni lífríkisins og vistkerfi, auk lífsgæða almennt. Það hefur því jákvæð áhrif á heilsufar, þróun og umhverfið að bæta loftgæði. Heilbrigði umhverfisins og mannsins eru bundin órjúfanlegum böndum,“ segir í frétt UNRIC þar sem fram kemur að Sameinuðu þjóðirnar hvetji alla, ríkisstjórnir, fyrirtæki, borgaraleg samtök og einstaklinga, til að grípa til aðgerða til að draga úr loftmengun og breyta lífsstíl okkar til hins betra.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum