Hoppa yfir valmynd
15.09. 2020 Utanríkisráðuneytið

Fjörutíu milljóna króna framlag vegna neyðarinnar í Lesbos og Líbanon

Sprengingarnar í Beirút í ágústbyrjun ollu mikilli eyðileggingu. Ljósmynd: UNICEF/UNI356993/Haidar - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur ákveðið að íslensk stjórnvöld veiti tuttugu milljónum króna til neyðaraðstoðar vegna eldsvoða í búðum hælisleitenda á grísku eynni Lesbos í nýliðinni viku. Þá verður tuttugu milljónum króna varið til mannúðarstarfs í Líbanon vegna sprenginganna í Beirút í ágústbyrjun og bætist framlagið við það sem greint var frá á sínum tíma. 

Ófremdarástand ríkir á Lesbos eftir að eldur olli mikilli eyðileggingu á Moria-móttökusvæðinu fyrir skemmstu. Vistarverur hátt í tólf þúsund hælisleitenda, þar af fjögur þúsund barna, brunnu til kaldra kola og margir eiga því ekki í nein hús að venda. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur því ákveðið að tuttugu milljónum króna verði veitt til neyðaraðstoðar til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR).  

„Ástandið á Lesbos er grafalvarlegt þar sem þúsundir sem fyrir bjuggu við harðan kost hafa nú misst allt sitt. Það er mat mannúðarstofnana á vettvangi að bregðast verði við þeirri neyð sem þarna ríkir og því höfum við ákveðið að veita þessum fjármunum til að aðstoða bágstadda án tafar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.  

Þá verður tuttugu milljónum króna varið til Lebanon Humanitarian Fund, svæðasjóðs samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) í Líbanon vegna áframhaldandi neyðarástands í Beirút í kjölfar sprenginganna þar 4. ágúst síðastliðnn. Þessir fjármunir koma til viðbótar við tuttugu milljóna króna framlag til matvælaaðstoðar í Líbanon sem íslensk stjórnvöld ákváðu skömmu eftir sprengingarnar. 

„Ríki heims brugðust hratt við hörmungunum í líbönsku höfuðborginni en betur má ef duga skal. Neyðin er enn mikil og bætist við þann vanda sem þjóðin átti við að etja, þar með talið efnahags- og stjórnarkreppu, auk mikils álags vegna flóttamanna frá grannríkjunum. Bregðast verður við, ekki síst til að sporna við enn meiri óstöðugleika í þessum viðkvæma heimshluta,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson.  

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
2. Ekkert hungur
16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum