Hoppa yfir valmynd
18.09. 2020 Utanríkisráðuneytið

Heimurinn á barmi hungurfaraldurs

Ljósmynd: Al Bara Monsour/WFP - mynd

Hungur í heiminum vegna stríðsátaka, að viðbættum matarskorti vegna COVID-19, er að komast á mjög hættulegt stig, að mati David Beasley framkvæmdastjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP). Hann greindi öryggisráði SÞ frá því í gær að án aukinna framlaga væri ástæða til að óttast hungursneyð meðal þjóða sem hafi búið við óstöðugleika árum saman.

WFP hefur aldrei í sögunni veitt fleirum matvælaaðstoð en á þessu ári. Ætlunin er að ná til 138 milljóna einstaklinga en þegar hafa um 85 milljónir manna notið matvælaaðstoðar stofnunarinnar. Beasley lagði þunga áherslu á að án aukinna framlaga væri heimurinn á barmi hungurfaraldurs.

Einkum eru það þjóðir í Afríku og Miðausturlöndum sem eru á barmi hungursneyðar. Stríðsátök í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó færast í aukana með tilheyrandi matvælaóöryggi sem nær nú til 22 milljóna einstaklinga. Svipaður fjöldi sveltur í Jemen. Hungruðum fjölgar einnig í norðausturhluta Nígeríu og Burkina Fasó.

Fyrir COVID-19 farsóttina höfðu 135 milljónir manna vart til hnífs og skeiðar en spár Alþjóðabankans gera ráð fyrir að tvöfalt fleiri verði í þeirri hræðilegu stöðu á þessu ári, eða um 270 milljónir manna. Sárafátækum kemur til með að fjölga í fyrsta sinn frá því seint á síðasta áratug, að mati bankans.

Frétt Sameinuðu þjóðanna

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum